Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1979, Page 55

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1979, Page 55
Buldi við brestur félag Reykjavíkur gekkst fyrir því, að í höfuðstaðnum var heil vika helg- uð trúmálaumræðum. Þá bergmáluðu um allt land leiftrandi setningar, sem hrutu af vörum og hittu mark, af því að þeim fylgdi kyngi heitrar sannfæringar, sem hikstaði ekki við að segja sannleikann berum orðum, hvað sem leið „helgusm tilfinningum“ einstakra fanga aldagamalla kenni- setninga. Þótt að forminu til stæði Stúdentafélagið fyrir þessari trúmála- umræðu, þá var það á engan hátt í myrkrunum hulið, að hinn almenni trúmálaáhugi, sem átti umtalsverðan hluta róta sinna í áhrifum frá guð- fræðideildinni, bar umræður trúmálavikunnar uppi, og yngsm nemend- urnir frá deildinni stóðu í fararbroddi með að hleypa fyrirtækinu af stokk- unum. I þessu sambandi tel ég rétt að vekja eftirtekt á því, að á þessum tíma, sem um var rætt, voru það margir guðfræðinganna frá deildinni sem hurfu frá að leggja út í lífið undir fána kirkjunnar. Það var eins og þeim fyndist sem annar vettvangur væri þeim heppilegri til menningarauka fyrir þjóðina, og það er vert sérstakrar athygli, hve þeir menn verða atkvæðamiklir í þjóðlífinu og sérstaklega í sambandi við félags- og menntamál. Má þar fyrst nefna spekinginn Jakob Kristinsson, sem var um skeið skólastjóri á Eiðum og síðan fræðslumálastjóri. Asgeir Asgeirs- son fór inn á stjórnmálasviðið, var um skeið fræðslumálastjóri og end- aði ferii sinn sem forseti ríkisins. Hann reið á vaðið með opinbera árás á rétttrúnað kirkjunnar með bæklingnum „Kver og kirkja“. Freysteinn Gunnarsson sneri sér að kennslu og uppeldismálum og tók síðan við stjórn Kennaraskólans eftir séra Magnús Helgason. Steinþór Guðmunds- son sneri sér einnig að skólamálum að háskólagöngu lokinni, en vann jafnhliða sem berserkur til æviloka á níræðisaldri að hvers konar hug- sjónamálum og þó sérstaklega á sviði stjórnmála sem eldheitur og ein- lægur sósíalisti. Einar Magnússon og Sigfús Sigurhjartarson fóru báðir einnig inn á þær brautir. Með Einari varð kennarinn yfirsterkari, og lauk hann opinberum starfsferli sínum sem rektor gamla menntaskólans í Revkjavík. En Sigfús helgaði sig stjórnmálunum af lífi og sál og hefur á því sviði skráð nafn sitt í sögu þjóðarinnar um aldir fram. Þá vil ég að síðustu geta Ludvigs Guðmundssonar. Hann nam um skeið guðfræði við Háskólann, gekk aldrei undir fullnaðarpróf, en brann af hugsjónaeldi um hin fjölbreytilegustu menningarmál, en skipti þar um svið, eftir því sem honum fannst þörfin brýnust hverju sinni. Heiðríkjan yfir trúmálum á Islandi á háskóla- og prestskaparárum mín- 45
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.