Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1979, Side 138

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1979, Side 138
Tímarit Mdls og menningar skarinn í Vestur-Evrópu gerir. Væntanlega eru þó Alþýðubandalagsmenn undan- þegnir þessum ákúrum. Þeir hafa sótt fræðilegan styrk sinn og fyrirmyndir til Evrópukommúnismans. Skensinu mun beint til þeirra sósíalista sem telja ekki einhlítt að elta það sem sagt er og gert í Vestur-Evrópu þar sem sósíalísk hreyfing er í pólitískri sjálfheldu stéttasamvinnunnar, en beina athyglinni meira að þeim hlumm heims þar sem baráttan gegn auðvaldi og imperíalisma er raun- verulega háð. Vestur-Evrópa er fyrir löngu hætt að vera miðsvæði heimssög- nnnar. Að láta sér ekki skiljast það er að stinga höfðinu í sandinn. í nóvember 1978. Runólfur Björnsson. Til félagsmanva Liðið ár var félaginu á margan hátt hagstætt. Afkoman var góð og fjölgun félags- manna veruleg. Em þeir nú orðnir 3300 og hefur fjölgað um níu hundmð síðast- liðin fjögur ár. Því takmarki sem við setmm okkur fyrir tæpum tveimur árum, fjölgun um eitt þúsund nýja félaga, hefur nær verið náð, þar sem framangreind f jölgun hefur að mestu gerst á s.l. tveimur árum. Fjölgun félagsmanna er mikið hags- munamál félagsins. Það er ekkert metnaðarmál sem slíkt, heldur gerir okkur auð- valdara að lækka bókaverð, en það er einn megintilgangur Máls og menningar að gefa út vandaðar og góðar bækur á viðráðanlegu verði. Þótt bókaverð okkar hafi síst af öllu verið hærra en gengur og gerist, þá fullnægir það ekki kröfum okkar sem bemm ábyrgð á rekstri félagsins. Við viljum í senn hafa betri og ódýrari bækur ■en aðrir útgefendur. Á síðastliðnu ári komu út 29 bækur, auk minniháttar endurútgáfna og fjögurra hefta af Tímaritinu. Bækurnar komu alls út í 61610 eintökum. Þetta er mesta út- gáfa sem Mál og menning hefur staðið fyrir frá upphafi. Velgengni undanfarinna tveggja ára hefur í för með sér fjölgun útgáfubóka í ár. Á þessu ári er fyrirhugað að gefa út a. m. k. fjömtíu bækur. Verður fjölgunin einkum á sviði barnabóka. Fyrirhuguð er heildarútgáfa á ritverkum Olafs Jóhanns Sigurðssonar, en fyrri verk þessa merka höfundar hafa verið ófáanleg árum saman. Þá kemur út seinna bindið af ritgerðum Kristins E. Andréssonar, framhald af ritsafni Heinesens, ein til tvær bækur af Skáldsögu um glæp eftir Sjöwall og Wahlöö. Haldið verður áfram með leikrit Shakespeares og vonandi kemur einnig út síðasta bindi ævisögu Tryggva Emilssonar. Þá kemur út afmælisrit í tilefni af sextugsafmæli Magnúsar Kjartans- •sonar auk margra annarra skemmtilegra bóka. Þrátt fyrir þessa velgengni, sem við fögnum að sjálfsögðu, komumst við ekki hjá því að fylgja almennri verðlagsþróun í landinu. Framleiðslukostnaður bóka hækk- aði um nálægt 40 af hundraði síðastliðið ár. Spáð er hækkun á yfirstandandi ári af stærðargráðunni um 35-40 af hundraði. Með hliðsjón af þessu, svo og því keppikefli okkar að stækka Tímaritið, hefur stjórn Máls og menningar ákveðið að hækka árgjöld í kr. 5000 fyrir árið 1979- Að lokum vil ég geta þess að gíróseðlar vegna árgjaldanna verða sendir út á næsmnni og eru félagsmenn beðnir að greiða þá hið fyrsta. Þ. O. 128
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.