Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1979, Side 121

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1979, Side 121
verða áþreifanleg í viðskiptum þeirra Afa og Berjabíts. Þessir tveir heimar sögunnar eru skýrt aðskildir en Afi er þeim sameiginlegur, þannig að ævintýrið verður einskonar innskot í raunveruleikann, veröld Afa cg Ommu, sem umlykur allt sögusviðið. Eitt af því sem gerir söguna af Berja- bít að meira listaverki en margar aðrar sögur er það hvernig skilja má hana á mismunandi plönum miðað við þroska cg djúphygli lesanda (eða hlustanda). í fyrsta lagi er það „sagan" sjálf, sam- skipti Ommu, Afa og Berjabíts og sam- töl þeirra sem fyllilega má njóta án þess að fleira komi til. En í öðru lagi kemur umfjöllun um ýmis vandamál sem verða lifandi og áþreifanleg í tengslum Afa og Berjabíts og áður er minnst á. Þessi vandamál má skilja ýmsum skilningi og heimfæra uppá veröldina sem við öll lifum í. I þriðja lagi er síðan margvís- leg heimspekileg umfjöllun sem sam- ofin er sögunni. Þar má nefna spurn- inguna um að eiga og deila með öðrum, cigingirni eða gjafmildi. Einnig er fjall- að um það að hafa vit fyrir öðrum, þeg- ar Afi segir Berjabít hvernig hann eigi að komast heim, sem reynist með öllu haldlaust. I einu samtali þeirra er vikið að Guði og bæninni eða öllu heldur því að biðja fyrir sér. Akaflega vel er farið með þessi viðkvæmu mál og niðurstaða umræðunnar er sú að maður þarf ekki endilega að skilja allt sem maður þykist vita, að til er fleira en það sem maður hefur sjálfur heyrt og séð. Spurningin um að vera heima eða fara burt kemur mikið við sögu. „Já, en það er ekki vandalaust að hafa vængi. Hann flaug of hátt og flaug of langt. Það var nú ólánið hans...... Hugsaðu þér hvað fuglarnir hafa ver- ið öfundaðir af vængjunum. Og svo Umsagnir um bcekur villast þeir bara í önnur lönd./..../ ■— Já, en ef hann hefði ekki haft vængi, væri hann bara mörgæs, eða ég veit ekki hvað." (bls. 52-53). Sagan gefur ekki endanlegt svar um hvort heima sé best eða hvort útþráin og ævintýraleitin séu skárri. En Afi og Berjabítur hafa báðir nokkuð til síns máls. Maður gæti lengi haldið áfram að tína til spurningar sem fléttaðar eru saman við þessa sögu og seint yrði sá listi tæmdur. En þessi samflétta er gerð á svo listilegan hátt að langt er frá því að maður hafi á tilfinningunni að verið sé að troða slíku uppá mann. Margir höfundar sem ætla sögur sín- ai fyrir börn hneigjast til þess að skrifa á einhverskonar tilbúnu barnamáli sem oftast verður tilgerðarlegt og væmið, enda hvergi til nema í huga viðkom- andi höfundar. Um Berjabít gegnir allt öðru máli. Stíllinn á þessari sögu er tvímæla- laust það sem sker úr um að hún ber af flestum öðrum sögum. Sagan er ákaf- lcga ljóðræn. Hún er skrifuð á einföldu cg fáguðu máli sem jaðrar stundum við að vera hátíðlegt en verður aldrei til- gerðarlegt. Þessi tæri einfaldleiki nýmr sín kannski best í náttúrulýsingum, sem eru snar þáttur í frásögninni og mynda fallegt baksvið og umhverfi atburðanna. En þessir stílseiginleikar halda sér einnig vel í samtölum og öðrum lýsingum. Það er eins með stíl þessarar sögu og annað í henni, að hann má skilja á mismun- andi plönum. Börn á ýmsum aldri og fullorðnir geta skilið, tileinkað sér og nctið hans hver með sínum hætti. Og því oftar sem sagan er lesin þeim mun betri verður hún. Slíkt er aðal verulega góðra bóka. Gunnlaugur Astgeirsson. 247
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.