Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Page 101

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Page 101
kvæmt reglum þessa kerfis, hversu mjög sem þeir þykjast fyrirlíta það. Kári, Halldór og Pétur eru aðeins tvær hliðar sama fyrirbæris sem lúta sömu reglum. Og allir lýsa þeir stöðnun. Halldór hef- ur ekkert lengur fram að færa nema óstöðvandi blaður. Langar þulur hans um menningar- og þjóðmál þekki ég eins og fingurna á mér. Eg hef hlustað á þær um langa tíð, meira að segja stund- um þulið með. Og einmitt þess vegna fer gaspur hans og blaður svo í taugarnar á manni. Höfundur notar frasa og klisjur beint úr þjóðmála- og menningarum- ræðunni til að herða lýsinguna á and- legri stöðnun. Og ansi er ég hrædd um að á mann slái þögn ef sú freisting sækir að að tjá sig á þennan hátt héðan í frá. Samt er blaður Halldórs vel sett fram, oft á tíðum fyndið, líkingar góðar og einstaka setningar frábærar, en heildin verður þvæla, merkingarlaus klisja. Halldór hefur þess vegna ekkert lengur að gefa Marteini, þvert á móti. Hann greiðir honum hvert höggið á fæt- ur öðru með tillitslausu gaspri sínu. Svo fer þó að lokum að jafnvel hann verður hræddur við þögn Marteins. „Segðu eitt- hvað mannfýla!" hrópar hann (180). En Marteinn segir ekkert. „Það er ekki endalaust hægt að nærast á því sem aðrir segja!" heldur Halldór áfram af sinni takmarkalausu illkvittni; kannski einnig ótta. Kannski er hér eitthvað raunveru- legt? Eitthvað sem ekki verður læknað á rólinu milli Lækjarbrekku, Ránar, Óðals og Þjóðleikhúskjallarans sem eru honum og flestum úr klíkunni jafngóð heimili og þeirra eigin, jafnvel betri. En Marteinn þegir. Hann heldur leit sinni áfram. Leitar fjær, til Kára, en þar er líka auðn og tóm. Fjölskylda hans er týnd. Marteinn, lífsakkeri klíkunnar, óska- barn hennar og eftirlæti, hefur lagt öll Umsagnir um bœkur sín egg í eina körfu, en þegar til kom reyndist karfan botnlaus. Hvers vegna? Guð er löngu dauður, allar hugsjónir fyrir bí, lífskippirnir frá miðjum 7. ára- tugnum og fram á þann 8. reyndust aðeins dauðateygjur. Því fór það svo? Halldór skellir skuldinni á umhverfið, þetta „fullkomna, pottþétta víti meðal- mennskunnar! Hér verða allir að and- legum krypplíngum." (74 — 75). I þessu millistéttarvíti þar sem allir þykjast hnífjafnir þrífst engin menning, „Hér þrífast ekki einusinni skáld lengur, bara rithöfundar, þessar litlu lúsiðnu pöddur sem eru að gánga af öllum skáldskap dauðum“ (45), (sem minnir óneitanlega á skoðanir ýmissa þeirra er um menning- armál fjalla). En sú andlega stöðnun og tilfinningalega gelding sem bókin lýsir er ekki einskorðuð við Reykjavík. Sá doði hefur fyllt fleiri vonleysi en litlar klíkur á hjara veraldar. „Við vorum skammsýn, höfðum lítið úthald, héldum að hlutirnir myndu breytast af sjálfum sér, lifðum í þægilegum, skemmtilegum, öruggum vasa á hinni miklu vinnuflík sögunnar," segir Ingunn (186—187). Þau héldu að allt tækist baráttulaust, þegar svo varð ekki gáfust þau upp og lokuðu að sér. Því það er erfitt að breyta heimin- um, hann er ekki bara „sprenghlægi- legur draumur í litum á breiðtjaldi", því gleymdu þau. Þau gleymdu því sem var fyrir utan dyr draumsins, kúguninni, of- beldinu, fátæktinni, hungrinu og dauð- anum. Þau voru ekki reiðubúin til að leggja það af mörkum sem til þurfti, þau felldu sig inn í kerfið með fyrirlitningar- glotti og lokuðu að sér. Þar um liggur leiðin til glötunar. Karlmenn bókarinnar að Marteini undanskildum eru sem hljómandi málmur og hvellandi bjalla, þeir kunna hvorki að gefa né þiggja, þeir kunna aðeins að berja vilja sinn í gegn. A 219
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.