Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Blaðsíða 5

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Blaðsíða 5
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR ■ 45. ÁRG. ■ 5. HEFTI • DES. 1984 Formáli Ég veit ekki en geri hér engu að síður ljóst hvers vegna ég hef ráðist í að vinna að úrvali portúgalskra bókmennta í þetta hefti. Eins og allt er hér um að ræða athöfn innst inni og í sjálfri sér, en henni er síðan gefin merking og hún túlkuð á ýmsan hátt. Urval þetta er líklega það víðtækasta sem gert hefur verið, enda fátt þýtt úr portúgölsku á aðrar tungur. I rauninni gefur það þó síst „rétta“ mynd af portúgölskum bókmenntum frá aldamótum og til dagsins í gær, heldur hyggst ég sýna hvernig hinar ýmsu stefnur sem hafa verið uppi, helst í Evrópu, hafa haft áhrif á portúgalskan skáldskap. Svo ég nefni dæmi er saga Brandao einkennandi fyrir táknrænu stefnuna, og saga Namora í nýraunsæisstíl. Urvalið hefur því hugmyndafræðilegan tilgang, án þess að fagurfræðin verði útundan eða fyrirbrigði mannsandans, hið óvænta og listræna. En ég hef ekki látið neinn pólitískan smekk ráða valinu. Engu að síður er mér ljóst að úrvalið hlýtur að falsa raunveruleikann, auk þess sem það takmarkar hann, vegna þess að í svona úrvöl verður höfundurinn að velja það sem er aðgengilegt hinum væntanlegu lesendum og jafnvel kunnugt, því að hinn almenni lesandi er ófær um að leggja í ævintýraleit og kynnast alókunnum slóðum. Slíkt er einvörðungu á færi sérvitringa eða einstaklinga. Urvöl bókmennta framandi þjóða gera lesendum til hæfis, hrædd við að styggja þá með of miklu — „sér“portúgölsku, í þessu tilviki. Lesandanum þætti þetta „sér“ óskaplega lélegt, ófær um að meta gildi þess sökum framandleikans, — áliti það vera flatt og illa þýtt. Það að hugur sé opinn fyrir áhrifum er sjaldgæft nema áhrifin komi í bylgjum frá stórþjóðum. Með úrvalinu vil ég líka leggja áherslu á að smáþjóðir eru til og menning þeirra oft jafn blómleg og hinna, þótt hægar fari og ekki gleypt við henni eins og gleypt er nú við sérhverju bandarísku gutli eða skandinavísku. Val ljóðanna hlýtur að orka meira tvímælis en sagnanna. Þau verða eflaust talin vera flöt og litlaus af ljóðaunnendum sem eru vanir háum hrópum. En portúgölsk ljóðagerð er afar fögur, hún hefur varðveitt hið lygna og djúpa mannvit latneskrar ljóðagerðar um leið og hún hefur endurnýjast vegna franskra og enskra áhrifa. I ljóðagerð allra þjóða er til einhver tegund af stuðlun. Hún er augljós á því að endurtekin eru orð, hrynjandi eða aðeins endingum orða er breytt, og stundum er hugsun endurtekin eða líkt og stuðlasett. Þessu hef ég reynt að halda, en seiðmagn portúgölskunnar og undiralda tilfinninganna hafa hnigið, sú saknað- 475
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.