Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Blaðsíða 50

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Blaðsíða 50
Tímarit Máls og menningar upp í þokunni, hið stýfða tré og risastóra sem hafði glatað lífssafa sínum fyrir löngu. Allt í einu varð konungurinn lamaður af skelfingu. Astir beininga- mannanna höfðu vermt tréð og kvisturinn sem þeir höfðu verið hengdir á þaktist blómjurtum. Tréð var hart og illt sem plágan en á greinina safnaðist allt blómskrúðið sem hinni eyddu jörð var bannað að bera. Þetta var ekkert, næstum ekkert, aðeins örsmá fáein blóm albúin að berast burt með fyrsta blæstri — hrein þjáning og ómengaður draumur. Fjöldi ógæfumanna hafði týnt lífinu, hengdur á greinar þess, og ræturnar höfðu visnað undan beiskum tárum kvalanna. Tréð drakk hvorki vatn né saug í sig vætu, lamað af ópunum. Það hafði séð fara fram hjá sér menn, vorið, og ríki hrynja, en ekkert hrærði það; og það hafði séð hönd sem hárreytti og formælti jörðinni og kastalanum. Tréð hafði séð jörðina umbreytast, óveður, hallæri og styrjaldir, en var jafn steinrunnið og dauðinn. Þessa nótt hafði samt ást tveggja betlara smogið inn í það og það varð þá að tærri viðkvæmni, líkt og það hefði varðveitt sérhverja ástríðu, vorið og ástir jarðarinnar — fordæmda tréð sem hafði verið notað í staðinn fyrir gálga í þúsund ár. RAUL BRANDAO (1867—1930) var fylgjandi táknrænustefnunni, stefnu sem var á ýmsan hátt fyrirrennari súrrealismans og sálfræði nútímans. Fylgjendur stefnunnar í listum og bókmenntum vissu að hið ytra borð hlutanna náði ekki í gegnum þá, og síst ef um manninn var að ræða; undir ytra borðinu eru ótal lög uns kemur að ólaginu í kjarna mannsins, ef maðurinn hefur þá nokkurn fastan kjarna en ekki fljótandi. I list listamannanna var tíðum eitthvað voveiflegt á sveimi og hún var síðar oft kölluð úrættuð, einkum af þeim sem fylgdu að málum málæðinu kringum þúsundáraríki einræðisstefnanna til hægri eða vinstri, um hinn nýja mann og mannkyn sem var í vændum. Brandao leitaði að manninum í hinu afbakaða lífi hans og hlægilegri hegðun, því við slíkar aðstæður er maðurinn hvað naktastur og grímulaus. Einkum voru það borgararnir sem lágu vel við höggi eða þeir sem glopra lífi sínu í lífsleit, sem er einkum stunduð, að því er virðist, í skemmtanalífinu og við neyslu örvandi lyfja og áfengis og tóbaks. Jafnframt þörf fyrir að sjá ekkert gott við auðstéttirnar og leggja einkum áherslu á lýsingu á þeim, með því að draga fram hrukkur og mörk ellinnar — eins og auðmenn væru eina fólkið sem verður elli að bráð — litu skáldin fremur rómantískum augum til alþýðunnar, og þá sér í lagi til blómlegra stúlkna í haga hjá lömbum eða í fjöru hjá nýveiddum fiski. Stúlkurnar ilmuðu stilltar af hinni ósnortnu náttúru, en ekki af tóbaki og farða eins og drósirnar í borgunum. Að sjálfsögðu úldnaði fiskurinn aldrei og ullin súrnaði ekki. 520
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.