Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Page 24
Tímarit Máls og menningar
andleg reynsla er komin á. Nýraunsæismaðurinn á lil hæðni, kaldhæðni, uppreisnar-
eðli, í bland við þrá eftir hinu ókomna, framtíðarþrá byggða á von: gylltri von um
góðæri.
Einnig er bölvað að vera alltaf á lífi
Einnig er bölvað að vera alltaf á lífi!
Sólin er sífellt eins og himinninn blár,
annaðhvort himinblár eða blár,
öskugrár, dimmur og næstum sægrænn. . .
Aldrei er himinninn í óvæntum lit.
Heimurinn breytist aldrei.
Trén, þau bera sín blóm
og lauf og aldin og fugla,
líkt og grænar vélar.
Landslagið breytist heldur ekki ögn.
Aldrei fellur rauður snjór
og aldrei fljúga blómin.
Tunglið er alveg augnalaust
og enginn málar augu á mánann.
Allt er vélrænt, nákvæmt og eins.
í þokkabót eru mennirnir alltaf menn.
Þeir andvarpa, drekka, hlæja og melta
án minnsta ímyndunarafls.
Og til eru fátækrahverfi, ævinlega óbreytt,
eilíf ræðuhöld Mússolínis,
gríðarlegur gorgeir, eilíf stríð
og eintómir kappakstursbílar. . .
494