Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Blaðsíða 96

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Blaðsíða 96
Tímarit Mdls og menningar fluttu borgarana til fjalla til að forðast borgarmökkinn. Spilakassi var þarna og háværir strákar og stelpur komu, settust við borðin eins og heima hjá sér eða þau hefðu tekið húsið á leigu, og stungu peningum í spilakassann, einum fyrir hvert lag. Dýrlegt. Jenito skrökvaði þegar Guida kvartaði: „Bara þú færð að fara með pabba í kaffihús" og hann svaraði: „Stelpur fara ekki í kaffihús.“ En þær fóru víst, og stungu peningi í kassann og klöppuðu lófum, skóku líkamann og voru með læti við þá sem vildu ekki taka þátt í þessu. Jenito hitti föður sinn í félagi við ókunnugan mann sem ræddi við hann alvarlega í laumi eða skrifaði í stílabók. Hann var alltaf með tvær eða þrjár bækur í stafla við kaffibollann. Hvað var hann að skrifa, hvaða bækur voru þetta, hvaða fólk heimsótti hann á kvöldin? Óþægilegur grunur nísti hann og uppnám yfir að faðir hans lifði tvöföldu lífi, að í honum væru tvenns konar menn: annar talaði ljúflega um almenna hluti, settist til borðs með fjölskyldunni, væri raunverulegur og aðgengilegur, en hinn var óljós, dularfullur, ógnvekjandi. Svo henti dálítið eitt kvöldið. Bíll heyrðist hemla skyndilega á göt- unni. Það ískraði í hjólbörðunum á rakri akbrautinni. Fótatak í stigan- um og einhver knúði dyra. Móðirin gat sér til um hvað væri að gerast, stóð kyrr í stofunni og virtist undrandi. Svo brá hún sér að glugganum og renndi óttaslegin til gluggatjöldunum. Komdu, sjáðu Arnaldo. Faðirinn gægðist fram að baki hennar, stökk allt í einu í innri salinn og kom með fangið sneisafullt af pappírum. Frændinn tók við þeim og bjóst til að stökkva út um bakgluggann sem vissi að garði nágrannanna, en sagði áður: Komdu líka, Arnaldo. Hrukkan á enni föðurins varð afar djúp og lokkurinn féll fyrir augað, en hann var rólegur og hristi höfuðið ákaft neitandi. Teygðu ekki tímann, komdu. Það er engin hætta. Fastar var knúið dyra. Frændinn ranghvolfdi augunum, hvarf. Þau biðu eftir að barið væri á ný, tvisvar, og loksins opnaði móðirin. Jenito var þungt um hjartað og fann það sama og þegar hann heyrði í fyrsta sinn haglél glymja á gluggunum fyrir þrumuveður. Eitthvað óljóst og ógurlegt var í vændum. Jenito, farðu fljótt inn til þín. Haglélið, haglélið. Jenito sá mennina koma inn úr dyrunum með 566
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.