Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1985, Side 102

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1985, Side 102
Tímarit Máls og menningar marxisma í Rússlandi. Með öðrum orðum: lögð er höfuðáhersla á, að þessi mikilhæfi rithöfundur hafi verið að lýsa ákvednum þjóðfélagslegum aðstæð- um. I þeim lýsingum hafi hann komið á framfæri samúð með lítilmagnanum og miklum sannleika um samfélagsþróunina, hvað sem að öðru leyti leið boðskap hans um kristindóm, og þá sérstakan kristindóm sem sest hefði að í rússneskri þjóðarsál, sem einu von þjóðarinnar og reyndar alls mannkynsins. Og að því er varðar hina siðferðilegu villu sem Raskolnikof ratar í, þá er hún hjá Sovétmönnum óspart reiknuð í ættartengsli bæði við borgaralega einstaklingshyggju og svo við Nietzsche og sporgöngumenn hans — og þar með sem lengst í burt frá kommúnismanum. Eins og menn muna skrifaði Nietzsche rit, sem Raskolnikof kynni að hafa gaman af að glugga í — það heitir Handan við gott og illt. Sú bók kom reyndar ekki út fyrr en tuttugu árum á eftir skáldsögunni, en þá er líklegt að Raskolnikof hafi lifað í góðu og kristilegu hjónabandi með Sonju í rammrússneskum smábæ. Stundum áttu þeir menn sem stjórna andlegu uppeldi og útgáfustarfsemi í Sovétríkjunum í svo miklum erfiðleikum með Dostoévskí, að þeir tók þann kost að forðast hann sem mest þeir máttu. Dýrlingur Sovétbókmennta, Maxím Gorkí, hafði ekki aðeins sagt að Dostoévskí líktist einna helst Shakespeare að „listrænum þrótti“ — hann hafði einnig sterklega varað við áhrifum af „sadískri grimmd" verka hans — um skeið þótti við hæfi að taka þær viðvaranir mjög bókstaflega. (Því mætti skjóta hér að, að jafnvel svo lítt kreddubundinn maður og Thomas Mann sagði í frægri grein: „Dostoévskí — já en í hófi.“) Nema hvað: frá því um 1930 og fram yfir 1950 voru verk Dostoévskís lítið gefin út í Sovétríkjunum, og þá helst einstök skáldverk, ekki síst frumraunin, Fátækt fólk. Það var ekki fyrr en eftir dauða Stalíns, með þeirri „hláku“ sem þá varð í andlegu lífi, að þráðurinn var tekinn upp aftur, bæði með nýrri heildarútgáfu skáldverkanna (1956-1958) og auknum rannsóknum á ferli þessa mikla „illa anda“ rússneskra bókmennta (ummæli Gorkís). Það var einmitt 1956 að út kom bók um Dostoévskí eftir V. Ermílof, sem er einkar gott dæmi um viðleitni Sovétmanna til að gera bæði að halda og sleppa þessum furðumanni. Tónninn er strax gefinn í fyrstu málsgrein bókarinnar:16 F. M. Dostoévskí, hinn mikli rússneski rithöfundur. . . lýsti í verkum sínum ómældum þjáningum niðurlægðs og svívirts mannkyns í arðránsþjóðfélagi og takmarkalausri samlíðan með þeim sem þjást. En um leið barðist hann af heift gegn allri leit að raunverulegum leiðum til að frelsa mannkynið undan niðurlægingu og kúgun. \ 92
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.