Tímarit Máls og menningar - 01.02.1985, Síða 108
Tímarit Máls og menningar
Krabbi skreið yfir stíginn og hún hrökk við óttaslegin og nam
staðar. Þegar hún sá skoplegan krabbann teygja út fálmarana einsog
til að ógna henni og hörfa aftur á bak áttaði hún sig og ætlaði að fara
að hlæja að ótta sínum en þá sparkaði Spánverjinn allt í einu af öllu
afli í litla dýrið og það tókst á loft og hafnaði í skurðinum. Hún hélt
áfram ferðinni án þess að segja orð og horfði útundan sér á krabbann
sem sökk í vatnið með líflausa fálmarana teygða út í loftið.
— Ertu hrædd? Þú sem ert alin upp í sveit! spurði hann og hló
tannlausum hlátri.
— Eg hélt þetta væri slanga.
— Ertu hrædd við slöngur?
— Dálítið, já.
— Það er eins gott að fara að venjast þeim, ha, ha! sagði karlinn og
hló enn hærra og leitaði að augum hennar til að gá hvað hann sæi í
þeim. En augu Isabelítu voru einsog dálítið af tæru vatni og annað
ekki.
Hún rifjaði upp kveðjuorð móður sinnar: „Hegðaðu þér einsog
kvenmaður, Isabelíta, mundu að þú ert orðin fjórtán.“ Og hún
skammaðist sín fyrir að hafa orðið hrædd.
Einhverju sinni hafði faðir hennar sagt að Juana Vizcaya væri
alvörukvenmaður, því hún væri duglegri en nokkur önnur og svo
væri hún ekki að glenna sig framan í hvern sem væri. Móðir hennar
var líka þannig, þögul og bláeyg. Kona er semsé sú sem ævinlega
fylgir manninum, sér um hús hans, þvær af honum og eldar ofan í
hann og elur upp börnin hans. Kona var líka sú sem einu sinni tók
spýtu, málaði á hana lítil augu og munn með viðarkoli og svæfði hana
síðan í fanginu og söng fyrir hana — þessu mundi hún vel eftir.
— Þú ert kannski að hugsa um að ég gæti verið faðir þinn, sagði
maðurinn og þá missté hún sig í fyrsta sinn.
— Hvað er nú? spurði hann.
— Ekkert, ég hrasaði, sagði hún og beið.
Þau stóðu kyrr og hann setti hendur á mjaðmir. Aftur virti hann
hana fyrir sér frá hvirfli til ilja og sagði svo um leið og hann sneri sér
við:
— Gleymdu ekki að þú ert fullvaxin kona.
Hún svaraði ekki en hugsun hennar flaug aftur af stað. Einu sinni
— það var varla nema ár síðan — hafði hún ímyndað sér að hún væri
98