Tímarit Máls og menningar - 01.02.1985, Page 113
Úrvinnsla orðanna
gera það, sagði hann, þetta er að
verða óþolandi.
Hvað?
Láta malbika á mér iljarnar.
Þú veizt það þýðir ekki eftir að
maður er orðinn fullorðinn. Það
verður að gera það á börnum. (26)3)
I þýðingunni hefur svar Péturs um að láta malbika á sér iljarnar fallið
burt. Fantasía textans og táknræn merking hans verða að engu, auk þess sem
álit konunnar á fyrirætlun Péturs kemur út sem óskiljanlegt svar hans við
spurningu hennar.
Svipað á sér stað í annarri svefnherbergissenu, þar sem hjónin hafa verið
að ræða fjárhagsvandræði sín og konan stingur upp á að hún geti fengið sér
vinnu:
det, sa han. Dette held pá á bli utole-
leg.
Kva?
Du veit vel at det ikkje nyttar nár
ein er vaksen. Det má gjerast i barn-
domen. (21)4)
Frumtextinn
Pétur?
Var hann sofnaður?
Nei, hann umlaði.
Pétur, ég gæti fengið mér vinnu.
Þá gætum við lokið við húsið.
En Pétur var nú aftur orðinn stór
og sterkur og einfær. Hann opnaði
augun og horfði einarður framan í
hana og heiminn. Nei, hann færi nú
aldeilis ekki að reka konu sína út að
vinna fyrir sér. . . (45)
Þýðingin
Peter?
Var han sovna?
Nei, han mulla noko.
Men no var Peter vorten stor og
sterk, og sjölvhjelpt att. Han opna
augo og ság frimodig pá henne og
verda. Nei, det skulle bli det siste
han gjorde á drive kona si ut for á
arbeide for seg. . . (33)
í þýðingunni hefur verið hlaupið yfir erindi konunnar við hálfsofandi
eiginmanninn. Það verður óskiljanlegt til hvers hún er að vekja hann, og
þeim mun óskiljanlegra hverju hann er að mótmæla. Þetta er í eina skiptið
sem útivinnu konunnar ber á góma í sögunni og gefin er skýring á
aðgerðaleysi hennar í þeim efnum. An þessa atriðis er lýsingin á hlutverka-
skiptingu hjónanna og sjálfsmynd Péturs alls ekki heil, og því mjög bagalegt
aðjjað skuli vanta.
I eftirfarandi dæmi hefur gloprast niður setning sem í fljótu bragði virðist
ekki skipta svo miklu máli út af fyrir sig, en reynist þegar betur er að gáð
vera mikilvægur hluti af ákveðnu mynstri í myndmáli og byggingu verksins.
Eftir að Pétur hefur hafnað tilboði leigjandans um peninga er viðbrögðum
konunnar lýst svo:
103