Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1985, Side 139

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1985, Side 139
Að deyja, það er aðeins hin alhvíta hreyfing. (33) Það mætti halda lengi áfram að tíunda kosti þessarar bókar. 36 Ijóð er fágætt verðmæti öllum þeim sem skáldskap unna og á raunar brýnt erindi við alla menn. Ljóð Hannesar Péturssonar bera með sér næmi, skilning og skáldlega hugsun og jafnframt mikinn húman- isma. A slíku þurfa allir að halda, ekki síst í nútímanum. Pdll Valsson MÓÐUHARÐINDI AF MANNA VÖLDUM? Gísli Gunnarsson: Monopoly Trade and Economic Stagnation. Studies in the Foreign Trade of Iceland 1602—1787 (Skrifter utg. af Economisk-Histor- iska Föreningen i Lund XXXVIII), Lundi (Studentlitteratur) 1983. Einokun og hagstöðnun er doktorsrit- gerð Gísla Gunnarssonar í hagsögu, 190 mjög drjúgar blaðsíður (vélritsáferð, þó jafnaðar línur), nokkrar myndir og kort, margar talnaskrár og línurit, tilvísana- og heimildabálkar að fræðimannlegum hætti. I örstuttum inngangskafla tæpir Gísli á þeirri sögutúlkun sem síðan verður rauður þráður bókarinnar: Allt frá mið- öldum hafi framfaramöguleikar Islend- inga legið í fiskveiðum fyrir erlendan markað, en íhaldssöm innlend valdastétt hafi af ótta við röskun á valdastöðu sinni, sett þróun sjávarútvegsins þröngar skorður, ekki síst með áhrifum sínum á kaupsetningar einokunartímans; með þeim hafi sjávarútvegurinn greitt niður Umsagnir um bækur viðskiptakjör landbúnaðarins, og fyrir vikið verið vanfær um að draga til sín fjármagn og vinnuafl að því marki sem æskilegt hefði verið; þetta sé öðru frem- ur skýringin á stöðnun og sárri fátækt í landinu öldum saman. I öðrum kafla er lýst baksviði verslun- arsögunnar, atriðum eins og heimilis- og fjölskyldugerð, atvinnuvegum, verð- hlutföllum í innanlandsviðskiptum. I hinum þriðja er gerð grein fyrir samsetn- ingu inn- og útflutnings á einokunartím- anum, og fylgir rækilegur samanburður á verðhlutföllum inn- og útflutnings, annars vegar í kaupstað á Islandi, hins vegar á mörkuðum Danmerkur og við- skiptalanda hennar. En af misgengi þess- ara verðhlutfalla stafaði mjög breytileg arðsemi einokunarverslunarinnar. I fimmta kafla er svo farið nánar niður í útflutningsmarkaðina fyrir fisk og kjöt, jafnframt því sem yfirlit er veitt um verslunarhafnir á Islandi, þjóðerni versl- unarskipanna og siglingu þeirra á er- lendar hafnir utan Kaupmannahafnar. Fjórði kafli er örstutt yfirlit um sögu einokunarinnar til 1733, ásamt ríkisaf- skiptum af verslun á fyrri öldum. I köflum 6—9 er sagan rakin miklu nánar þau 55 ár sem eftir eru af einokunartím- anum, sagt frá verslunarfyrirtækjunum hverju af öðru og bókhald þeirra notað, ásamt verðlagsheimildum og öðrum til- tækum gögnum, til að lýsa afkomu þeirra og rekstrarskilyrðum. Það efni er svo dregið saman í 10. kafla ásamt yfir- liti um konungstekjur af Islandi og ann- an hag Dana af sambandinu við Island. I lokakafla er lýst heildarniðurstöðum og um leið rædd ýmis atriði í viðskipta- háttum einokunartímans. Sögurakning og sögugreining Af nýjum upplýsingum í bók Gísla TMM IX 129
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.