Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Side 120

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1986, Side 120
Tímarit Mdls og menningar Það er ekki venjan að ekkja eða ekkill skrifi eftir maka sinn af því að sá sem eftir lifir veit of mikið, er ekki trúverð- ugur í þessu samhengi. Það er móðirin sem býr föðurinn til handa eftirkomendum. Af hverju þarf hún að gera þetta? Var það kannski móðirin sem bjó föðurinn/harðstjórann til? Hver var móðirin? Sambandið við hana skiptir sögu- manninn höfuðmáli af því að tilfinning- ar hans til hennar eru grundvöllurinn að ástum hans sem fullorðins manns (233). Lýsingin á móðurinni er jafn samsett og Iýsing föðurins: Upphaflega er hún lífs- glöð sveitastúlka, falleg, örlát og hvers manns hugljúfi. Hún giftist töffaranum Hadda og dreymir eins og hann um hamingjuna „cheek to cheek“. Veruleikinn veldur henni vonbrigðum eins og honum, en hún hefur börnin, fimm aðdáendur, félaga, bandamenn. Drykkjuskapur föðurins og árásargirni gerir börnin hrædd og óörugg, móðirin verður hinn fasti og öruggi miðpunktur í tilveru þeirra. Þau tilbiðja hana og eru montin af henni: „Huggun að enginn á mömmu sem er eins falleg og góð og mamma okkar. Það er albarnarómur í hverfinu.“(149) Guðmundur Andri verður bundinn móðurinni, tilfinningalega háður henni fram eftir aldri. Þegar hann endurgerir mynd hennar á hann mun erfiðara með að sjá hana utan frá en föðurinn. Allt jákvætt felst í henni; líkama hennar með leyndardómum sínum, blíðu hennar, skilningi, vernd. Allar þessar tilfinningar bernskunnar brjótast fram þegar móðir- in verður alvarlega veik í síðasta hlutan- um: Eg bora höfðinu í sængina. Þetta sem mátti aldrei gerast. Þetta sem ég áminnti Guð um á hverju kvöldi. Að aldrei. Hvernig sem allt veltist ... heimsendi já, mömmu nei. Stikkið sem við hlaupum í þegar veröldin verður okkur um megn. Mamma! Mamma! Mamma! alla leið upp í eldhús. Mamma! Mamma! Mamma! alla leið niður í vaskahús. (225) Móðirin heldur áfram að vera glöð og örlát við börnin - og aðra en hinn brös- ótta mann sinn. Hann grunar hana um að hafa verið sér ótrú, sögumanninn grunar það líka. Faðirinn er afbrýði- samur, þolir ekki tilhugsunina um að hún eigi einhvers konar líf sem hann er ekki þátttakandi í. Sömu afstöðu má sjá hjá sögumanninum, hún er samþættuð bernsku hans og í bókinni reynir hann að vinna úr þessum móðurbindingum, gera móðurina að persónu, skilja á milli sín og hennar. Það tekst af því að tíminn hefur smám saman breytt hlutverkaskip- uninni; móðirin er gömul, hrörnandi og orðin háðari syninum en hann henni. Hin narkissíska samsömun við hana er smám saman orðin minning. Eftir stend- ur einhvers konar tóm. Uppgjör Asta og Haddi; stórveldi sem eigast við á kaldastríðsárunum, aðalpersónur í sögum barna sinna: Uppgjörið er endalaust og heldur áfram þótt sex fet séu niður á hann. Lýkur ekki fyrr en síðasta meðlim er slakað ofan í gröfina og jafnvel eftir það heldur útgeislun áfram í afkom- endunum. Við erum geislavirk án þess að hafa hugmynd um hvar, hve- nær og af hverju sprengjurnar sprungu. Þótt tekist hafi að setja 518
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.