Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Síða 43

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Síða 43
myrkur byrgja sýn. Það er sýnt með hug- lægri myndatöku sem klippt er með nær- myndum af andliti og augum stúlkunnar. Að lokum neyðist hún til að stöðva bifreið sína við afskekkt mótel þar sem Norman Bates tekur á móti henni. Lesa má ákveðna merkingu út úr þessu sjónar-spili. Stúlkan hefur fram til þessa misnotað skynfæri sín og treyst á óraunveruleg verðmæti. Nú er eins og skynfærin taki af henni ráðin; hún verður að staldra við til að endur-skoða gjörðir sína. Á mótelinu tekur hún ákvörð- un um að hverfa til baka en það er um seinan. Sjónar-spilið nær hámarki í sturtu- atriðinu er hefst með nærmynd af auga Nor- mans sem starir á stúlkuna gegnum gat á vegg. Er líður á atriðið fjölgar myndum er minna á lögun augans; myndavélinni er beint að salemisskál, sturtuhaus, niðurfalls- opi — og loks brostnu auga sem starir inn í vélina til okkar. Það er eins og geisli þess búi yfir dulinni ásökun þótt það sé jafn innihaldslaust og niðurfallið í sturtustæð- inu. Að okkur sækir uggvænleg hugsun — að við séum í slagtogi við morðingjann; við horfum að minnsta kosti á stúlkuna með líkum hætti og hann — sem hlut en ekki manneskju. Margir lifa langa ævi án þess að taka þátt í henni á virkan hátt. Þeir láta sér nægja að fylgjast með sljóum augum; þeir þyrpast á slysstað af forvitni einni saman, fylgjast með mannlegum hörmungum að mestu ósnortnir. Þessir menn líta á umheim sinn sem tæki eða markmið; því er líkast sem þeir séu slegnir blindu — þeir horfa án þess að sjá. Oft eru aðrar manneskjur ekki annað en líkön í þeirra augum, viðföng þrár eða viðbjóðs. Slíkt hefur augljósar afleiðingar. Sé manneskja svipt mennsku sinni og gerð að hlutveru glatar hún sjálfstæðu lífí sínu. Augnaráð getur drepið, þegar allt kemur til alls. Kvikmynd Hitchcocks lýsir slíku ferli á einkar ágengan hátt. Við sjáum sjálf okkur í auga stúlkunnar myrtu líkt og í dimmum spegli; við verðum að annarlegum verum í dýptarlausum heimi sem einungis er hægt að tengjast með ofbeldi — reynsla morð- ingjans verður að upplifun okkar ef ekki er bmgðist við í tíma. Kannski játning Teds Bundys komist næst sannleikanum: sá sem drepur af handahófi drepur ekki manneskj- ur með andlit og sögu heldur ópersónulegar ímyndir. I samtalsbókinni Conversations with a Killer (1989) segir Bundy meðal annars: Við erum að tala um ímyndir... og það er hræðilegt að segja það. Vissulega erum við að tala um ímyndir. Við erum að tala um nafnlaust og upphafið fólk sem lifir og and- ar... en persónur, uh, hann þekkti þærekki. Þær voru aðeins, uh, uh, tákn.11 Þessi orð eru þmngin óhugnaði sé sam- hengið haft í huga. Kannski er þó enginn munur á þeim sem horfir gegnum gatið á veggnum, og hinum sem stingur hnífnum í holdið. í báðum tilvikum slær augað eign sinni á mannvem. Að sjálfsögðu er fómar- lambið manneskja með holdi og blóði, en í augum morðingjans er það einungis tóm táknmynd; „sjónreynslutrúin" er þróuð til fullnustu: maður og hlutir, maður í hlutum, mannhlutir. Þessi hlutgerving mannver- unnar kemur einkar skýrt fram í myndum eins og Coma (1978) þar sem fjallað er um læknisvísindi nútímans. í þeim er leikið á ótta okkar við uppskurði, banvæna sjúk- dóma, t.d. krabbamein, líffæraflutninga, blöndun lífsforma. Að sjálfsögðu em mörg dæmi um aflimun líkamans í hrollvekjum TMM 1991:1 33
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.