Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Side 60

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Side 60
skálda og heimspekinga. Hvað vakir fyrir skáldinu? Það vill sýna okkur hlutina í nýju ljósi, tjá tilfinningu eða reynslu sem ekki hefur fengið að koma fram í sviðsljósið. Við gerum yfirleitt ekki þá kröfu til skálda að þau séu sjálfum sér samkvæm eða hafí ein- hverja heilsteypta lífssýn sem þau miðli í verkum sínum. Skáldið þarf ekki á skoðun- um og rökum að halda til að yrkja. En við krefjumst þessa af heimspekingum og öll- um þeim sem vinna að því að setja fram skoðanir og hugmyndir og miðla þeim í verkum sínum, að þeir sýni samkvæmni og heilindi í lífsskilningi sínum og viðhorfum. Þessi skýri, röklegi greinarmunur á skáldi og heimspekingi er ekki í raunveruleikan- um eins ljós og afdráttarlaus. Sami maður- inn getur verið bæði skáld og heimspek- ingur og það getur því orðið árekstur í sama manninum á milli skáldsins og heimspek- ingsins, hvor fái að ráða. Platon er senni- lega eitt merkasta dæmið um þetta, þó að þar hafi heimspekingurinn reyndar haft yf- irhöndina, að því er virðist, að minnsta kosti í Ríkinu. Kannski er það samt skáldið Platon sem hefur átt mestan þátt í því að festa ímynd heimspekingsins í vestrænni menningu. Sókrates verður í verkum Platons lifandi ímynd heimspekingsins, og það þurfti mikið skáld, en ekki bara heim- speking til þess að gera hann að þessari ímynd. Flestir rithöfundar eru einhvers konar skáld og einhvers konar heimspekingar. Sumir eru góð skáld, en vondir heimspek- ingar, aðrir kunna að vera þokkalegir heim- spekingar, en ekki mjög góð skáld. Mér finnst að Dostojevski hafi verið stórmerki- legt skáld, en mér finnst ekki mjög mikið til um heimspeki hans. Ég tel að heimspeki hans hafi verið þversagnakennd og oft laus- lega grunduð og standist ekki stranga gagn- rýni. Sama gildir um lífsafstöðu og skoð- anir fjölda annarra rithöfunda sem hafa jafnvel ekki skilið að til þeirra eru gerðar— og að þeim ber sjálfum að gera til sín — kröfur um samkvæmni og heilindi í skoð- unum. Það þarf að spyrja um þann lífsskiln- ing sem miðlað er í verkum rithöfunda, því að það er hann, ekki síður en skáldskapur- inn sem ber uppi verk hans. Þegar skáldin fara að hugsa og vilja koma hugsun eða lífsskoðun til skila, þá hljótum við að krefjast samkvæmni af þeim, og það eru mörg stórskáld sem standast einfaldlega ekki þá kröfu. Þessvegna getum við ekki kallað þau góða heimspekinga, þótt þau kunni að hafa orðið heimspekingum inn- blástur. Mörg skáld miðla samt líka lífsskoðun sinni í verkum sínum og þá kemur náttúru- leg heimspeki þeirra í ljós. Ég vil nefna Stephan G. Stephansson sem dæmi um skáld sem jafnframt er góður náttúrulegur heimspekingur. Kvæði hans eru góð til lestrar, ekki bara vegna þess að þau séu góður kveðskapur, heldur vegna þess að þau miðla heilsteyptri, rökstuddri lífsskoð- un. Einar Benediktsson var, að mínu áliti, síðri að þessu leyti, þótt hann hafí líka reynt að miðla lífsskoðun í mögnuðum skálds- skap sínum. Sama gildir um Stein Steinarr, sem er greinilega andlega skyldur Einari. En skáldskap skortir samt þá röklegu gagn- rýni sem er einkennandi fyrir raunverulega heimspeki. Hún kemst aldrei nægilega vel til skila. Skáldskapur getur verið frasa- kenndur. Það er til dæmis lýsandi, að í til- vitnanasöfnum eru sjaldan fleyg orð heim- 50 TMM 1992:1
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.