Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Page 61

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Page 61
spekinga. Þar eru tilvitnanir í skáldverk. Þetta stafar af því að heimspekingar tala ekki í frösum. Þegar ekki er hirt um samkvæmni og rök, er líka hætt við að ekki sé skeytt um sann- leikann og það er þetta sem getur orðið uggvænlegt. Platon sá á sínum tíma að skáldin létu skoðanir og rök lönd og leið og skeyttu ekki um sannleikann. Þessvegna varaði hann við þeim og taldi þau geta haft óheppileg áhrif á fólk. Við eigum að mörgu leyti við sama vanda að etja nú á dögum. Margir virðast ekki skilja mikilvægi skoð- ana og röksemda og skeyta ekki um sann- Ieikann. Þetta þarf ekki að vera skáldum að kenna, en ég er hræddur um að verk margra skálda og rithöfunda eigi þátt í þessu. Kann- ski skiptir mestu að fólk átti sig á því hvers virði sannleikur er. Hvað áttu nákvœmlega við þegar þú segir að ekki sé skeytt um sannleikann ? Það eru til mismunandi skilgreiningar á sannleik- anum og þœr eiga ekki allar jafn vel við skáldin. Ef við viljum reyna að átta okkur á sann- leikanum sjálfum, þarf að hafa í huga að hann kemur fram í lífi okkar á ólíka vegu. I fyrsta lagi er sannleikurinn fyrir okkur það sem er. Hið sanna er það sem er í raun og veru. Þetta er frumspekileg eða verufræði- leg afstaða til sannleikans. I öðru lagi er sannleikurinn viss eiginleiki á dómum okk- ar, fullyrðingum eða skoðunum. Staðhæf- ingar okkar um hlutina og heiminn og raunar hvað sem er geta verið sannar eða ósannar. Þetta er þekkingarfræðileg afstaða til sannleikans, ef ég má orða það svo. í þriðja lagi er sannleikurinn krafa sem við gerum hvert til annars og til sjálfra okkar um að segja satt og vera sönn í samskiptum okkar og lífi. Ég held að þetta þriðja sem ég nefndi — sannleikurinn sem krafa—sé það sem mestu skipti og liggi hinum tveimur til grundvallar. Að eitthvað sé satt og að hægt sé að segja það gerir ráð fyrir hugsandi verum sem skilja að þær hugsa til að bera sannleikanum vitni. Hugsun sem ekki skeytir um sannleikann fyllist af myrkri, hún hættir að hugsa. Mér finnst að án sann- leika væri engin mennsk hugsun til. Ég veit ekki hvort ég get fært sannfærandi rök fyrir þessari tilfmningu sem mér fínnst vera sönn, það er að segja fyllilega áreiðanleg. Sannleikurinn er siðferðilegt hugtak, ná- tengt hugtökum á borð við heilindi, sann- girni, traust, áreiðanleika, heiðarleika, kærleika o.s.frv. Ég held að hann sé jafnvel dýpsta hugtak mannlegrar hugsunar, upp- runalegasta hugtakið. Það er í mesta lagi að við getum talið veruleikahugtakið álíka upprunalegt en ég held að á endanum hljóti það líka að byggja á sannleikanum. Hugsaðu þér til dæmis hvað börn eru fljót að byrja að velta fyrir sér blekkingu og sannleika, muninum á þessu tvennu. Og hvað er það sem við hugsum um þegar við horfum í augun fólks? I augnaráðinu sést hvað er satt, í því sjá menn hver er hver. Foreldrar leita alltaf að augnaráði barnsins. Að það horfi í augun og fari að brosa. Frumspekileg og þekkingarfræðileg skil- greining sannleikans — þær koma saman í þeirri siðferðilegu. Við deilum viðmiðun- um. Um það er siðferðilegt samkomulag. Það hefur hinsvegar lengst af verið hefð- bundið í heimspeki að líta svo á að frum- speki og þekkingarfræði hljóti að koma á undan siðfræði, öll siðfræði velti á þessum TMM 1992:1 51
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.