Morgunblaðið - 23.12.2014, Side 23

Morgunblaðið - 23.12.2014, Side 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2014 Laugavegi 7, 101 Reykjavík - Sími: 551-3033 Flottir í fötum Frakkar Leðurjakkar Peysur Belti Bindi Jólagjöfin fyrir herrann Frábært úrval af jakkafötum, skyrtum, skóm og ýmsum gjafavörum Hæðarstillanlegir leikskólastólar Smiðjuvegur 9 • 200 Kópavogur • Sími 535 4300 • Fax 535 4301 Netfang axis@axis.is • Heimasíða www.axis.is Hönnuður: Sturla Már Jónsson Húsgagna og innanhúsarkitekt m ag gi os ka rs .c om LAUF LAUF Glæsilegur fjölnota stóll frá AXIS • 5 fallegir staðlaðir litir af skeljum • Fjaðrandi bak • 3 hæðarstillingar • Hægt að sitja á honum á ýmsa vegu fjölnota stóllinn - nú líka hæðarstillanlegur fyrir leikskóla BAKSVIÐ Brynja Björg Halldórsdóttir brynja@mbl.is Framkvæmdastjóri Félags atvinnu- rekenda (FA) gagnrýnir að fyrirhug- að umhverfisgjald, sem leggst á flutn- ingskostnað um áramótin, taki ekki mið af lækkun olíuverðs að undan- förnu. Fulltrúar skipafélaganna benda hins vegar á að lækkunin hafi endurspeglast í lækkun olíugjalds. Umhverfisgjaldið kemur til vegna gildistöku ESB-tilskipunar um tak- mörkun brennisteinsoxíða í útblæstri skipa. Kröfurnar gilda á tilteknum svæðum í Evrópu og er þeim mætt með því að brenna gasolíu í stað svartolíu. Síðan skipafélögin til- kynntu hækkun vegna gjaldsins í nóvember hefur verð á gasolíu lækk- að úr 720 bandaríkjadölum tonnið í um 560. „Okkur finnst heldur bratt að ákveða hvert gjaldið ætti að vera með margra vikna fyrirvara, á meðan ol- ían lækkar svona hratt,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA, í samtali við Morgunblaðið. Hann segir fyrirhugað gjald valda kostnaðar- aukningu um rúma 60 dollara á hverja gámaeiningu. „Allar hækkanir á flutningskostn- aði geta á endanum komið fram í verði vörunnar. Það er þó erfitt að meta hver endanleg niðurstaða verð- ur, þar sem flutningskostnaður er mishátt hlutfall af vöruverði.“ Að sögn Ólafs er of snemmt að meta áhrif gjaldsins á verðlag í landinu en gjaldið geti hækkað flutningskostnað um nokkur prósent. „Auðvitað sýna menn því skilning að gjaldið er sett á vegna alþjóðlegra reglna til verndar umhverfinu. Við gagnrýnum þó að um miðjan nóvem- ber sé gefið út hvert gjaldið skuli vera um áramót, þar sem díselolía hefur lækkað gríðarlega á þessum vikum frá nóvember og til áramóta, en gjald- takan byggist á olíuverði. Við bindum þar af leiðandi vonir við að gjaldið verði endurskoðað mjög fljótlega, svo menn séu ekki að greiða meira en þeir þurfa.“ Olíugjald reiknað mánaðarlega Pálmar Óli Magnússon, forstjóri Samskipa, sagði í samtali við Morg- unblaðið að umhverfisgjaldið væri til- komið vegna þess að skipum væri ætlað að brenna gasolíu í stað svartol- íu, í þeim tilgangi að draga úr meng- un. Gasolía væri umtalsvert dýrari en svartolía og umhverfisgjaldinu væri ætlað að mæta mismun á verði svart- olíu og gasolíu. „Á undanförnum mán- uðum hefur verð á svartolíu og gas- olíu farið lækkandi og endurspeglast sú lækkun í olíugjaldi Samskipa (BAF) sem gefið er út mánaðarlega. Verðmunur á gasolíu og svartolíu hef- ur hins vegar haldist nánast óbreytt- ur í gegnum þetta lækkunarferli. Umhverfisgjaldið verður endurskoð- að til lækkunar eða hækkunar eftir því sem aðstæður gefa tilefni til.“ Matthías Matthíasson, fram- kvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs Eimskips, tekur í sama streng. „Olíu- gjaldið endurspeglar lækkun olíu- verðs og hefur þar af leiðandi lækkað mjög hratt undanfarna mánuði.“ Olíugjaldið sé endurskoðað í hverj- um mánuði og verið sé að reikna upp umhverfisgjaldið út frá þróun olíu- verðs. Af þeim sökum sé ekki ólíklegt að gjaldið taki breytingum frá því sem fyrirhugað var í nóvember, þeg- ar tilkynnt var um það. Gjaldið muni svo endurspegja olíuverð á þeim tímapunkti sem það sé lagt á hverju sinni. Morgunblaðið/Eggert Umhverfisgjald Ný gjaldtaka leggst á sjóflutninga núna um áramótin. Kalla eftir end- urskoðun á um- hverfisgjaldi  Framkvæmdastjóri FA vill að tekið sé mið af hraðri lækkun olíuverðs ,,Reiknistofa bankanna nýtur engrar sérstöðu í skjóli laga um virðisauka- skatt og hluthafar hennar hafa ekki nýtt Reiknistofuna til að komast hjá greiðslu virðisaukaskatts. Það er mið- ur að forsvarsmenn Samtaka iðnaðar- ins hafi ítrekað og ranglega fullyrt op- inberlega að félagið njóti forskots á markaði í krafti laga um virðisauka- skatt,“ segir Friðrik Þór Snorrason, forstjóri Reiknistofu bankanna. Í Morgunblaðinu í síðustu viku sagði Almar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins (SI), að nýjar leiðbeiningar Ríkis- skattstjóra myndu tryggja jafnræði um skattlagningu á sölu upplýsinga- tækniþjónustu til fjármálafyrirtækja. Friðrik kveðst fagna því að SI hafi fengið staðfest hjá RSK að jafnræði ríki milli fyrir- tækja sem veita upplýsingatækni- þjónustu fyrir fjármálafyrirtæki. ,,RB hefur alltaf haldið því fram, að þóknun fyrir vinnu, sem unnin sé fyrir fjármála- fyrirtæki, sé undanþegin virðisauka- skatti þegar telja má vinnuna eðlileg- an og nauðsynlegan þátt í starfsemi viðkomandi fjármálafyrirtækja og sé unnin í tengslum við fjármálagjörn- inga. Í framhaldinu af staðfestingu RSK hefði verið eðlilegt að SI hefði dregið fyrri yfirlýsingar til baka.“ Að sögn Friðriks byggist framtíð- arsýn og stefna RB á því að félagið starfi á jafnræðis- og samkeppnis- grundvelli. ,,Við hlutafjárvæðingu RB árið 2011 var sjálfstæði félagsins sem þjónustufyrirtækis tryggt af eigend- um þess. Aðgreiningin á milli fjár- málafyrirtækja sem hluthafa annars vegar og sem viðskiptavina hins veg- ar var styrkt enn frekar með sátt við Samkeppniseftirlitið árið 2012, þar sem fram kemur að fulltrúar eiganda í stjórn RB eru sérfræðingar sem hvorki starfa hjá fjármálafyrirtækj- unum né sitja í stjórn þeirra.“ Eins segir Friðrik að RB hafi lagt sig fram við að eiga gott samstarf við Samkeppniseftirlitið við framkvæmd sáttarinnar og við RSK um fram- kvæmd laga um virðisaukaskatt. Þannig hafi félagið leitað eftir áliti RSK á því hvort formbreyting RB hefði áhrif á meðferð þess á virðis- aukaskatti. ,,RSK staðfesti að virðis- aukaskattur legðist ekki á þjónustu sem veitt er fjármálafyrirtækjum, teldist þjónustan eðlilegur og nauð- synlegur þáttur í starfsemi fjármála- fyrirtækjanna og veitt í tengslum við fullnustu fjármálagjörninga. Skiptir þá engu hvort RB eða annar aðili veiti fjármálafyrirtækjum eða öðrum slíka þjónustu. Þetta hafa Samtök iðnaðar- ins nú fengið staðfest frá RSK.“ brynja@mbl.is Friðrik Þór Snorrason Segir RB ekki njóta skattalegrar sérstöðu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.