Morgunblaðið - 23.12.2014, Side 32
Borgarveggjum rutt
í síkin og nútímaborg
verður til 1850 – 1918
Þegar kom fram á 19. öld fór
áhrifa iðnvæðingarinnar að gæta
verulega í Kaupmannahöfn. Fólks-
fjölgun var ör og borgin var að
springa vegna landþrengsla innan
borgarveggja. Mengun var yf-
irgengileg og flest verkafólk bjó í
heilsuspillandi húsnæði. Um miðja
öldina gerðist margt í senn. Júní-
byltingin 1830 hafði mikil áhrif um
alla Evrópu í lýðræðisátt. Árið
1834 var kosið til ráðgefandi stétt-
arþinga í Danmörku og árið 1840
gaf konungur út reglugerð um
stjórnskipun Kaupmannahafnar,
sem hefur haldist að mörgu leyti til
okkar daga. Áhrif borgara á stjórn
borgarinnar höfðu verið lítil á dög-
um einveldisins 1660 til 1840.
Konungurinn afsalaði sér ein-
veldi 1848 og árið eftir tók þing-
bundin ríkisstjórn við. Árið 1847
var komið á lestarsamgöngum milli
Kaupmannahafnar og Hróarskeldu.
Sama ár var Carlsberg bjórverk-
smiðjan byggð upp í Valby sunnan
borgarveggjanna og á svipuðum
tíma hófst rekstur hinnar miklu
skipasmíðastöðvar Burmeister &
Wain á landfyllingum norðan Krist-
jánshafnar. Flestar verksmiðjur
voru áður byggðar innan borg-
arveggja innan um íbúðarhúsin.
Einstaklingsframtakið tók smám
saman við af konungsvaldinu með
auknum.
Árið 1852 var byggingarbanni af-
létt á landsvæðinu milli borg-
arveggjanna og varnarlínanna um-
hverfis borgina. Bæði borgarveggir
og varnarlínur höfðu reynst gagns-
litlar í árás Englendinga 1807 þar
sem fallbyssur þeirra gátu skotið
um einn kílómetra frá ytri höfninni
inn yfir borgina. Kólerufaraldur
braust út 1853 vegna mengunar í
vatnsbólum borgarinnar og dóu þá
um 5.000 borgarbúar. Formlega
var svo ákveðið af hernaðar- og
borgaryfirvöldum árið 1856 að rífa.
Árið 1843 fékkst leyfi til að
byggja skemmtigarðinn Tívolí á
landi hersins sunnan við Vest-
urport og árið 1847 var fyrsta járn-
brautastöðin byggð við Enghave.
Núverandi aðaljárnbrautarstöð var
byggð við hlið Tívolí 1911. Voru
þetta fyrstu meiri háttar fram-
kvæmdirnar utan borgarsíkjanna
áður en byggingarbanninu var.
Árið 1857 var Eyrarsundstoll-
urinn felldur niður, en honum var
komið á 1429. Hurfu þar með síð-
ustu leifar lénsskipulags miðalda í
verslun og siglingum. Þetta var al-
gjör bylting, eftir samþjöppun
byggðarinnar um aldir innan borg-
arveggjanna var nú loksins leyfi-
legt að byggja utan þeirra. Líkja
má þessu við hraunflóð, svo hratt
byggðust ný borgarhverfi upp utan
gömlu múranna. Umhverfis Frið-
riksbergskastala sunnan borg-
arinnar og norðan borgarinnar, þar
sem efnaðir borgarar og aðall áttu
sumarhús, byggðu nýríkir villur
sínar. Borgarhverfin Vestur- og
Norðurbrú byggðust hratt upp af
fjölbýlishúsum fyrir verkafólk og
millistéttarfólk.
Gatnanetið tók mið af gömlum
aðkomuleiðum til borgarinnar eins
og Vesturbrúar- og Norðurbrúar-
götur en einnig af afmörkun jarð-
arskika út frá þessum götum. Þessi
nýju hverfi við meginleiðirnar yfir
hringvötnin eru kölluð brúar-
hverfin.
Fjölbýlishúsin, sem flest voru 5-7
Iðnvæðing í Danaveldi
Í bókinni Borgir og borg-
arskipulag er fjallað um
sögulega þróun og skipu-
lag borga, í samhengi við
skipulagssögu Reykja-
víkur. Í þessum kafla
segir frá umbrotatímum í
sögu Kaupmannahafnar
á 19. öld. Höfundur er
Bjarni Reynarsson.
Skrudda gefur út.
Kjarni Ráðhústorgið 1913. „Bjó um þriðjungur borgarbúa í gömlu borginni um 1910, tæplega 15% 1938 og um 10% síðustu áratugi.“
Bílaverkstæði Jóa býður upp á alla almenna
þjónustu fyrir flestar gerðir bifreiða.
Er kominn tími á að
smyrja bílinn þinn
Opið: mánud. – fimmtud. 8-17 föstudögum 8-15
með allt fyrir bílinn
Dalvegi 16a - 201 Kópavogi | Sími: 564 5520 | bilajoa@bilajoa.is | www.bilajoa.is
Að smyrja bílinn
reglulega er hagkvæm og
ódýr leið til þess að tryggja betri og
lengri endingu vélarinnar.
564 5520
bilajoa.is