Morgunblaðið - 23.12.2014, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2014
BÆKUR
Markmið verkefnisins Eyðibýli á Ís-
landi er að sögn Gísla Sverris Árna-
sonar hjá Eyðibýli – áhugamanna-
félagi að rannsaka og skrá umfang
og menningarlegt vægi eyðibýla og
annarra yfirgefinna íbúðarhúsa í
sveitum landsins. Jafnframt að
stuðla að björgun áhugaverðra og
byggingarsögulega mikilvægra
húsa, m.a. með endurgerð og nýt-
ingu í ferðaþjónustu. Til verður
verðmætur þekkingargrunnur um
búsetu og líf Íslendinga fyrr á tím-
um.
Hringferðin hófst á Suðurlandi
Fyrstu skref verkefnisins voru
tekin sumarið 2011 þegar rannsókn
fór fram á eyðibýlum og yfirgefnum
húsum á Suðurlandi. Afraksturinn
var heildstætt yfirlit um 103 yfirgef-
in hús sem kom út í veglegu riti,
Eyðibýli á Íslandi. Sumarið 2012
náði rannsóknin yfir tvo landshluta,
Norðurland eystra og Vesturland.
Þá voru skráð 236 hús og gefin út
tvö bindi af ritinu. Sumarið 2013
náði rannsóknin til Vestfjarða ann-
ars vegar og Norðurlands vestra
hins vegar. Þá voru 217 hús rann-
sökuð og gefin út tvö bindi. Rann-
sókninni lauk sumarið 2014 þegar
hús í Norður-Múlasýslu og Suður-
Múlasýslu voru rannsökuð auk húsa
í Árnessýslu, Gullbringusýslu, Kjós-
arsýslu og Vestmannaeyjum, alls
189 hús. Í viðauka síðasta bindisins,
7. bindis, er auk þess fjallað um 4
hús. Rannsóknin í heild sinni nær
því alls til 748 húsa.
Merkileg fyrir ýmsar sakir
Hugtakið eyðibýli er hér notað í
nokkuð þröngum skilningi. Rann-
sókn nær til yfirgefinna íbúðarhúsa í
sveitum landsins sem ekki hafa verið
tekin til annarra nota. Þau skilyrði
eru gefin að húsið hafi a.m.k. fjóra
uppistandandi útveggi. Húsin þurfa
ekki endilega að standa á eyðijörð
heldur geta þau staðið á jörð í bú-
nytjum. Eyðibýli geta haft mikla
þýðingu af ýmsum ástæðum. Þau
geta verið merkar menningarminjar
og mikilvægar heimildir um byggða-
sögu. Aldur húsanna, húsagerð eða
byggingarlag þeirra getur verið sér-
stakt en einnig er sérstaða húsanna í
búsetulandslagi sveitanna oft mikil.
Bækurnar eru gefnar út í litlu
upplagi af áhugamannafélagi sem
stendur fyrir rannsókninni. Hægt er
að kaupa þær hjá félaginu í Síðu-
múla 33.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.eydibyli.is
Húsin sem
þögnuðu
Nýverið komu út 6. og 7. bindi Eyðibýli á Íslandi en
það eru jafnframt lokabindin í ritsafninu. Í sveitum
landsins er fjöldi eyðibýla og yfirgefinna íbúðarhúsa
sem mörg hver eru vel byggð og geyma merka sögu.
Í fjöru Eyðibýli búa sum yfir heillandi fábreytileika, eins og agnarsmár og fagurauður bærinn Ystabúð.
Tindur Landsagið skapar viðeigandi bakgrunn við Ingimundarhús.
Munið að slökkva
á kertunum
Athugið hversu langur brennslu-
tími er gefinn upp á umbúðum kerta
Lúkas Ari, 8 ára