Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1993, Síða 58

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1993, Síða 58
stæða við nýklassísk verk Thorvaldsens. Þær sýna gjarnan kvalda líkama, lrkama sem tíminn hefur mótað. Það er í þeim ójafnvægi, ófullkomleiki sem eru hvor- tveggja eiginleikar lífsins, sem er sífelld verðandi og ber í sér endalok sín: dauðann. Það býr viska í grótesku fagurfræðinni sem ekki er í hinni klassísku og hún geislar af hverri síðu í verkum Rabelais. Tökum sem dæmi frásögnina af fæðingu Panta- grúls (bls. 174-5). Gargantúi veit ekki hvort hann á að gráta eða hlæja vegna þess að konan hans, Badebekk, lést af bamsför- um. Hann horfir til skiptis á látna eiginkon- una og nýfædda drenginn og segir: ,,Ó, fólski dauði, hvað þú ert mér meinleg- ur, hvað þú ert grimmur, að hrifsa frá mér hana sem bar að vera ódauðleg. Og þegar hann sagði þetta grét hann eins og kýr. En skyndilega fór hann að hlæja eins og kálfur þegar Pantagrúll kom honum í hug.“ Það er freistandi að setja þessa grótesku fagurfræði í samband við það sem fyrr er sagt um áhrif lærðrar nafnhyggju á hugsun Rabelais, enda gerir hann það sjálfur. Gargantúi veit ekki hvort hann á gráta eða hlæja en til að komast að niðurstöðu reynir hann að nota rökfræði skólaspekinganna: „Fyrir hvoru tveggja hafði hann röklegar forsendur svo honum lá við köfnun, því hann leiddi þær fram in modo et figura, en hann gat ekki dregið af þeim niðurstöðu, og þar af leiðandi var hann tepptur eins og mús í gildru eða héri í snöru.“ Ef hefðbundin fagurfræði leitar í vemleik- anum að endurspeglun fegurðar sem er handan hans, þá er það nátengt afstöðu raunhyggjunnar sem Ockham gagnrýndi. En karnívalíska fagurfræðin er í röklegu samhengi við nafnhyggjuna sem býður upp á að veruleikinn sé skoðaður á eigin for- sendum, en ekki sem endurspeglun æðri vemleika. Hugsun skólaspekinnar er ófær um að takast á við það sem er þó meginein- kenni tilvemnnar, það að hún er full and- stæðna. Gleðin og sorgin, gott og vont, lífið og dauðinn rúmast hins vegar innan fagur- fræði kjötkveðjuhátíðarinnar og því freistar hún nafnhyggjumannsins Rabelais. Það er því naumast nokkur tilviljun að hann er einn þeirra sem leggja gmndvöll að því bókmenntaformi sem evrópsk menning hefur gefið mannkyninu. Skáldsagan er fullkomin andhverfa þeirrar orðræðu sem leitast við að troða hugmyndum upp á veru- leikann. Hún er þvert á móti tilraun til að skilja hann eins og hann er, án fyrirframgef- inna hugmynda. Hún er opin og jákvæð afstaða gagnvart tilverunni og öllu því óvænta sem hún býður okkur upp á. Það er vegna þess að hún byggir á hugsun sem Rabelais fann í senn í lærdómi og alþýðu- menningu samtíma síns, hugsun sem ekki hjakkar sífellt í sama farinu, hugsun sem rúmar andstæður og kennir okkur að hugsa um þær og með þeim. Það ber að fagna því að hin mikla bók Rabelais er nú komin út á íslensku. Nú sem aldrei fyrr þurfum við að þróa með okkur hugsun sem ekki brennur yfir þegar hún rekst á mótsagnir tilverunnar, þykist ekki hafa höndlað sannleikann en leitar hans samt og getur hjálpað okkur að lifa á þess- um „dauðans óvissu tímum“. 56 TMM 1993:4
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.