Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1995, Page 85

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1995, Page 85
byggjar ólíkra landa fundu snemma hjá sér þörf til að beisla umhverfið og náttúruöflin. Þeir máluðu myndir af væntanlegri veiði á innanverða hella til þess að magna hana til sín svo hún yrði auðveldari bráð. Þeir ristu sömuleiðis rúnir og höfðu þannig áhrif á náungann sem og næsta nágrenni. Þeir drógu upp hringi og þríhyrninga á jörðina til að ná betra sambandi við alheiminn. (Þetta tíðkast raunar enn hjá sumum sem lifa á nýöldinni). Myndir hafa þannig fylgt manninum frá fyrstu tíð. Myndir/ímyndir. Maður horfir á mynd en ímynd hennar horfir á hann. Og myndir hafa gegnt mismunandi hlutverki; styrkt sambandið við heim- inn, lýst himnaríki á jörð, túlkað gildismat ríkjandi stétta eða gagnrýnt viðtekna heimsmynd og dregið fram eiginleika hvers tíma. í aldanna rás þjónaði myndlist fyrst og fremst seiðandi eða trúarlegum tilgangi og þegar maður hugsar um það birtast fljótlega geislabaugar fyrir hugskotssjónunum og englar flögra í kring eins og hvítar dúfur á Markús- artorginu í Feneyjum. Geislabaugurinn er merkilegt tákn. Hann tengir nefnilega vel saman sál og sálarhylki, hug og líkama. Á sínum tíma gengu aðeins heilagir menn um með þennan höfuðbúnað en í dag er hægt með sérstakri tækni í nútímaljós- myndun að sjá þennan baug hjá velflestum, að vísu mismunandi bjartan og litskrúðugan. Þetta kalla sumir áruna eða útfrymið. Yfirborð árunnar þó víðfeðm sé, er í rauninni næfurþunnt, eða hlutfallslega jafnþykkt og gufu- hvolfið sem er aftur hlutfallslegra þynnra en eggjaskurn. En fólk á þess auðvitað líka kost að setja á sig áru eftir nýjustu tísku, farða hana á sig samkvæmt alþjóðlegum litaspjöldum tískuhönnuða og snyrtifræðinga. Litir eru birta. Ljósmyndarar hafa lengi unnið með áruna og þá gjarnan í sólarlögum. Ára náttúrunnar, innri ró hennar og sálræn hvíld. Sumir hafa notað fíltera í þessu augnamiði, til að styrkja litaskalann, en það töldust lengi vel ekki vera alvöru vinnubrögð. Þau voru ekki „eðlileg“, heldur endurunnin og póstmódern. En náttúran varð fyrst falleg með rómantíkinni. Hún hefur sömuleiðis lengi verið vinsælt myndefni hjá málurum og er það enn í dag. Stundum er hún dregin upp sem hálfrökkvaðar stemningar, myrkir innviðir híbýla eða opins umhverfis eða hreinlega máluð sem sálrænar upplifanir og þá jafnvel alveg aftur í brún frumspekileg litbrigði jarðarinnar. í þessu sambandi má nefna verk ungs evrópsks listamanns sem lokaði sig inni í almyrkvuðu herbergi svo dögum skipti þangað til hann byrjaði að sjá allt rauðbrúnt en þegar hann kom út í dagsbirtuna á ný tóku línur og loft á sig svargrænan lit. Þannig náði hann að sjá með líkamanum í bókstaflegum skilningi, í gegnum brúnleitan lit blóðsins og síðan andstæðan lit hans í grænu. Litir skipta þess vegna sköpum þegar rætt er um sál í málverki. Hið TMM 1995:2 79
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.