Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1997, Page 22

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1997, Page 22
ATLl HEIMIR SVEINSSON 3 Kennarar mínir og fyrirmyndir voru 10-15 árum eldri en ég, og höfðu allir upplifað heimsstyrjöldina síðari. Það var skrítið fyrir ungan mann sem kom frá landi þar sem stríðsgróðaskattur var lagður á efnamenn og betri borgarar töluðu lengi um „blessað stríðið“, að kynnast þessu fólki. Ég held að við eyjaskeggjar úr norðrinu gerum okkur ekki grein fyrir því hversu yfirgengileg þjáning stríðið, nasisminn og síðar kommúnisminn var. Og fyrir millistétt- arungling frá einangraðri, hálfdanskri nýlendu bak við heiminn - þar sem nýlega hafði verið stofnað lýðveldi - framkölluðu kynnin af svokallaðri heimsmenningu dálítið sjokk á þessum árum. Ég kom til Þýskalands tvítugur, í miðju efnahagsundrinu og kalda stríðinu. Þeir sem voru 10-15 árum eldri þökkuðu sínum sæla fyrir að hafa lifað af djöfulganginn. Ég lærði hefðbundið handverk tónsmíðanna hjá Gunter Raphael, stórmerku tónskáldi af Gyðingaættum og fékk þar með innsýn í harmsögu þeirrar þjóðar. Síðar bjó ég í Hollandi í skjóli annars Gyðings, Walters Maas. Einnig kynntist ég kaþólsku kirkjunni á þessum árum og dvaldist um tíma í klaustri hjá Benediktusarmúnkum. Þau áhrif fylgdu mér og löngu síðar tók ég kaþólska trú. Ég hef álitið það mikið lán að vera uppfóstraður hjá gyðingum og múnkum. Hér heima hafði ég lært á píanó hjá Rögnvaldi Sigurjónssyni, og var liðtækur píanisti. Hann lét mig spila verk eftir Prokófíeff og Bartók, og það þótti djarft í þá daga. Frönsku impressjónistunum hafði ég kynnst hjá Guðmundi Jónssyni píanóleikara og mér verða alltaf ógleymanleg fyrstu kynni mín af þeim. Nóturnar voru fullkomlega ólesanlegar og óskiljanlegar. En þá strax vildi ég stríðari hljóma! Áður en ég hélt utan voru Webern og Stockhausen fyrirmyndir mínar. Hér heima á íslandi hafði ég heyrt Tríóið opus 21 eftir Webern, og Söng ungling- anna eftir Stockhausen. Einnig hafði Jón Nordal lofað mér að hlýða á Zeitmasse eftir Stockhausen og Le marteau sans maitre eftir Boulez. Ég var óskaplega hrifinn og þessari tónlist vildi ég kynnast. Þetta var veganestið. Svo kynntist ég samtímatónlistinni í Köln og hreifst með. Stockhausen, König, Zimmermann og Cage mótuðu mig öðrum fremur. Annars var ég - og er - alæta á tónlist. Það hefur svo margt gott komið fram af ólíkum toga, sem auðgað hefur líf mitt. Ég hugsa um verkið sjálft, ekki stefnuna sem það telst til eða höfundinn. Það er aðeins ein stjarna í tónlistinni, sagði Mahler: verkið sjálft. Mér finnst alltaf undarlegt þegar gamaldags tónskáld þykjast ekki tilheyra neinum ismum. Það er ekki hægt að stilla upp klassík annars vegar, sem á að vera góð, eilíf, og ismum hins vegar, sem eiga að vera skammlífar tískustefnur, 20 TMM 1997:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.