Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1997, Page 27

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1997, Page 27
LISTAMANNSLÍF gaf ég mér aldrei nógan tíma til að sinna henni sem skyldi. Þó hefur hún fylgt mér allar götur og áhrifa frá henni gætir eflaust í verkum mínum. Síðar komu tölvurnar til sögunnar sem kölluðu á nýjar aðferðir og nýja fagurfræði. Allt hefur þetta aukið möguleikana og fjölbreytnina. En um leið verður valið erfiðara. Fjölbreytnin á ljósvakanum jókst ekki með fjölgun rásanna. Það var aðeins útvarpað meira magni af því sama. Þannig er þetta með tölvutæknina og elektróníkina. En mér finnst nauðsynlegt tónskáldum núna að fást við þessa nýju tækni. Hætt er við að hún lendi í tækja- og tæknidýrkun eins og í poppinu. 7 Allt sem heyra má er efniviður í tónlist, tónar og þagnir, öll hljóð hvort sem þau flokkast undir hávaða eður ei. Þetta er afrakstur módernismans og raftónlistarinnar. Allir stílar allra tíma og allar hefðir í heimi geta staðið saman í tónlist nútímans. Það má segja að ekkert sé bannað. En það var aldrei neitt bannað. Miklir listamenn gerðu nákvæmlega það sem þeim datt í hug og sannfæring þeirra sagði þeim. Það er fáránlegt að segja að hér áður fyrr hafi eitthvað verið bannað. En efniviðurinn er jafn vandmeðfarinn og fyrr. Það var ekki allt klassískt sem samið var í C-dúr. Margt var bullað, og er ennþá bullað undir gömlum háttum, sem fuskarar telja að séu upphaf og endir alls. Og innblástur er forréttindi fárra, rétt eins og áður. Á öllum tímum eru loddarar sem blekkja samatímamenn sína. Verstir finnast mér þeir sem þykjast vera fulltrúar „gömlu meistaranna". Núna tala ungir menn um að Stockhausen, Kölnarskólinn og Darm- stadthópurinn (en þar voru, og eru, merkileg sumarnámskeið í nútímatón- list) hafi stjórnað tónlistarstefnum í Evrópu á sjötta og sjöunda áratugnum. Þetta er algjör firra. Áhrif Stockhausens voru mikil, því hann samdi frábær verk, hafði einstakt fræðilegt hugmyndaflug, og hæfileika til að sjá hlutina í nýju ljósi, óvæntu samhengi, og hann hafði upptendrandi útgeislun. Hann hafði sína hirð rétt eins og fleiri góður listamenn; þar trúðu sumir hverjir stíft á meistarann. En ég kannast ekki við að neinar tilskipanir hafi verið gefnar út í Darm- stadt, neinir opinberir dómar felldir um hvað væri gott og vont. Hvenær og hvar? Mér er spurn. Það er algeng aðferð í umræðum hér á landi, þó ekki sé hægt að kalla hana séríslenska, að gera andstæðingnum upp skoðanir, helst fáránlegar, og ráðast síðan á þær. TMM 1997:4 25
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.