Tímarit Máls og menningar - 01.12.1997, Page 52
Silvana Paternostro
Þrír dagar með Gabo
(Greinin sem hérferá eftir, Þrírdagarmeð Gabo, eftirkólumbísku blaðakonuna
Silvönu Paternostro, erþýdd úrspænska bókmenntatímaritinu LETRA. íhenni
segir hún allítarlega frá námskeiði sem Gabriel García Márquez hélt á síðasta
ári í Cartagena í Kólumbíu, en hér birtist greinin nokkuð stytt. TRE)
S
Ímars 1995 kom rithöfundurinn Gabriel García Márquez á laggirnar
„flökkuskóla“ eins og hann sjálfur kallar fyrirbærið; Stofnun til eflingar
bættri blaðamennsku í spænskumælandi löndum Rómönsku Ameríku.
Ástæðan var sú að hann hafði áhyggjur af þróun blaðamennskunnar í
álfunni, en hann var sjálfúr blaðamaður áður en hann skrifaði Hundrað ára
einsemd sem síðar aflaði honum Bókmenntaverðlauna Nóbels. Markmið
hans er að blása nýju lífi í blaðamennsku þessara landa með námskeiðum
sem halda skal sem víðast. García Márquez telur afar brýnt að bæta jafnt
menntun blaðamanna sem skrif þeirra og kvartar einnig yfir því að blaða-
menn í dag hafi meiri áhuga á að verða fyrstir með fréttina og þeim
fríðindum og forréttindum sem fylgja blaðamennskuskírteininu, en hinni
skapandi hlið starfsins og siðfræði þess. Hann segir að þeir grobbi af því að
geta lesið leyniskjöl afturábak, en skrif þeirra líði bæði fyrir stafsetningar-
og málfarsvillur og þau skorti auk þess dýpt: „Þeir vinna samkvæmt þeirri
reglu að besta sagan sé sú sem fyrst kemst á prent, en ekki sú sem best er
sögð“, skrifaði García Márquez þegar skólinn var stofnaður.
Gabriel García Márquez er gagnrýninn á þau viðhorf sem ríkja í háskólum
og hjá ritstjórum dagblaða gagnvart því starfi sem hann segir að sé hið besta
í heimi. Hann er ósammála þeirri skoðun - sem er allsráðandi í blaðamanna-
skólum - að blaðamenn séu ekki listamenn. García Márquez telur blaða-
mennsku „bókmenntategund“. Hann segist líka gjarna vilja sannfæra
ritstjóra um ágæti þess að fjárfesta minna í nýjum tækjum en meira í þjálfún
starfsmanna sinna.
Stofnunin hefur aðsetur í Barranquilla í Kólumbíu og með fjárhagslegri
50
TMM 1997:4