Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1997, Page 60

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1997, Page 60
Böðvar Guðmundsson Að ljúga frá víða Tilefni þessarar greinar er dulítið fyrirlestrarkorn eða erindi sem ég flutti á aðalfundi Sögufélagsins 22. september 1997. Góðkunningi minn, Svavar Sigmundsson dósent, bað mig að koma á fundinn og segja virðulegum fundarmönnum eitthvað um heimildir og heimildanotkun mína við samningu bókanna um Ólaf fíólín og hyski hans, Híbýli vindanna og Lífsins tré, þegar búið væri að samþykkja reikninga og kjósa í stjórn. Nokkrum dögum síðar gerðist svo það, að ritstjóri Tímarits Máls og menningar falaðist eftir þessu spjalli mínu til birtingar. Ekki er ég viss um að nokkur kunni að draga lærdóma af því sem ég hafði að segja, engu að síður reyndist ég nógu hégómlegur til að slá til. En ég vil þó strax biðja væntanlega lesendur að hafa það hugfast að hér var upphaflega um spjall að ræða en ekki grein. Ég tók það ráð að upphefja mitt mál á frægri tilvitnun í Njálu, þar sem segir frá því að Kári Sölmundarson er kominn til Orkneyja eftir Njálsbrennu og kemur óforvarandis til jarlsbæjarins í Hrossey. Þar var þá Gunnar Lamba- son að skemmta með frásögn af Njálsbrennu: Þetta var á jóladaginn sjálfan. Sigtryggur konungur spurði: „Hversu þoldi Skarphéðinn í brennunni?" „Vel fyrst,“ segir Gunnar, „en þó lauk svo að hann grét.“ Um allar sagnir hallaði hann mjög til og ló frá víða.“ Sögukornið sem sagt er í bókunum tveimur, Híbýlum vindanna og Lífsins tré, mun að öllum líkum teljast vera söguleg skáldsaga. Megi góðir sagnfræð- ingar einhvern lærdóm draga af mínum vinnubrögðum, þá verður hann kannski helstur sá að svona má ekki gera, skuli sannleikanum þjónað, því ég fór að eins og Gunnar Lambason, hallaði til um flest og ló ffá víða. Af því að hér er um að ræða einhvers konar skammhlaup milli bókmennta og sagnfræði væri kannski ekki úr vegi að byrja á að athuga hvað fræðin segja um sambandið þar á milli. En eins og góðum sagnfræðingum er ljóst umfram 58 TMM 1997:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.