Tímarit Máls og menningar - 01.12.1997, Qupperneq 61
AÐ LJÚGA FRÁ VÍÐA
annað fólk, þá hefur aðgreining þessa tvenns ekki alltaf verið skýr. Forðum
tóku menn Hómer bókstaflega, enda fannst líka Trójuborg að lokum. Og
Forðum trúðu feður því,
og fleiri kannski öldin,
að Gunnar hafi haugnum í
haldið söng á kvöldin,
segir í gamalli vísu og mun vera rétt. íslendingasögunum trúðu menn eins
og nýju neti langt ffam á okkar öld og gott ef margir gera það ekki enn. Svo
eru aftur á móti aðrir sem fmnst ekkert í þær varið úr því að þær eru ekki
sannar. Og svo koma enn aðrir til og segja að þær séu einmitt svo merkilegar
af því að þær séu heimilda- eða sögulegar bókmenntir.
Á þessu tvennu gerir bókmenntafræðin mun. Greinir annars vegar í
heimildaskáldsögu og hins vegar í sögulega skáldsögu. 1 Hugtökum og heitum
í bókmenntafrœði sem út kom árið 1983 er þessum mun lýst svo:
Heimildabókmenntir (d. dokumentarisme), Samheiti á bókmennta-
legum verkum sem lýsa sannsögulegum viðburðum með því að nota
heimildir beint, svo sem skjalagögn, vitnisburði, viðtöl o.s.frv. Með
því er ekki átt við alþýðleg sagnfræðirit eða ævisögur, heldur framar
öllu ífásagnir í skáldskaparformi og leikrit, þar sem höfundarnir
skapa hvorki persónur né atburði, heldur eru bundnir af heimildum
sínum; hins vegar velja þeir úr þeim og tengja þær saman svo að úr
verður heildarmynd. Off getur því verið erfitt að draga skýr mörk
milli heimildabókmennta og annarra bókmenntagreina, svo sem
ferðalýsinga og frásagna blaðamanna (> fréttabcekur) annarsvegar,
hinsvegar sögulegra skáldsagna og leikrita eða raunsærra samtíma-
skáldverka...
Síðar í uppsláttargreininni er gerð grein fýrir nokkrum höfundum og verk-
um þeirra, td. Bandaríkjamanninum John Dos Passos og Dananum Thorkild
Hansen, sem flestir hér þekkja fyrir bækurnar um landkönnuðinn Jens
Munk, og einnig trílógíuna um þrælahald og þrælaflutninga Dana á 17. og
18. öld. Fyrir hana fékk hann Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs á sínum
tíma. Þá segir ennfremur í uppsláttargreininni í Hugtökum og heitum-.
Á íslensku má nefna bækur eins og Haustskip eftir Björn Th. Björns-
son (1975) og Yfirvaldið eftir Þorgeir Þorgeirsson (1973)...
í uppsláttargreininni um sögulega skáldsögu stendur í sömu bók:
TMM 1997:4
59