Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1997, Page 70

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1997, Page 70
BÖÐVAR GUÐMUNDSSON hæst hafa um stofnun íslensku nýlendunnar, þeir sem hjá mér heita Jón Kolfreyr og Sighvatur Þingmann. Jón Kolfreyr er ákafur stuðningsmaður þess að allri íslendingar flytji til Alaska og fái það til einkanota. Um Jón Ólafsson og Alaskaför hans hefur Hjörtur Pálsson skrifað ágæta bók, og ætli það hafi ekki ráði nafni Alaskaagentsins hjá mér, að Jón var fæddur á Kolfreyjustað. Og svo er það Sighvatur Þingmann. Ég var í vor er leið nokkra daga í Manitoba. Á Gimili var ráðstefna á vegum íslendingafélagsins og íslensku- deildar Manitobaháskólans og þangað kom fólk víða að sem áhuga hefur á sögu Vesturíslendinga. Þar hitti ég elskuleg íslensk hjón komin langt sunnan úr Bandaríkjum, en þaðan liggur beinn og breiður vegur yfir gresjuna í Suður - og Norður-Dakota yfir línuna hjá Pembína og svo áfram Pembina-High- way til Winnipeg. Til marks um það hvað þetta er löng leið, sögðu þau mér, að þau hefðu þá nýlega verið búin að fá sögukornið mitt og hefðu þau skipst á um að aka og lesa hátt og voru nýbyrjuð á síðari bókinni þegar þau náðu til Gimli. Tilviljunin hagaði því svo til að ég var staddur með þessum hjónum á byggðasafni Gimlibúa, sem nú er komið í nýtt húsnæði í gamla barnaskól- anum, sem áhugasamt fólk hefur reist úr rústum í sjálfboðavinnu. Þar hékk að sjálfsögðu á vegg stór og mikil mynd af Sigtryggi Jónassyni, fylkisþing- manni og framámanni íslendinga. „Þarna höfum við svo Sighvat Þing- mann,“ sagði þessi elskulegi maður og benti mér á myndina. Og ekki gat ég neitað því. Og þannig mætti lengi telja. Ýmsir hafa spurt mig um Jens Duffrín, og í einlægni sagt, þá á hann sér tvær fyrirmyndir helstar. Fyrir mörgum árum las ég grein eftir Sigurð Nordal um íslenska konu vestanhafs sem var sýning- argripur í trúðleikhúsi þar og sýnd sem eskimói. Hún hlaut fýrir vikið stranga dóma landa sinna. Að vonum hafði Sigurður Nordal allt annan og mildari skilning á örlögum hennar. Hún er að hluta til bak við Jens Duffrín. Hinn hluti hans er afabróðir minn, sem var um árabil götusópari í Winnipeg og endaði sína ævi hjá góðu fólki á elliheimilinu Bethel á Gimli. Hann kunni hvorki að lesa né skrifa og fé festist ekki við hann, hann var sólginn í að horfa á kvikmyndir og að láta taka af sér ljósmyndir. Sextán ára gamall komst hann undir verndarvæng The Good Templars í Winnipeg og þar átti hann jafnan athvarf á hverju sem gekk. Vafalaust mætti nú finna einhverjar fleiri fýrirmyndir persóna, en ég veit ekki hvað það er í sjálfu sér áhugavert. Ég heyrði margar sögur af fólki í mínu ungdæmi, sögur af skrýtnu fólki, góðu fólki, mislyndu fólki og alls kyns fólki, og af þeim brunni eys ég auðvitað bæði meðvitað og ómeðvitað. Og jafnvel þótt höfundur sé að skrifa um löngu liðinn tíma, þá hlýtur hann alltaf að vera að blanda eigin reynslu í frásögn sína. Julia Kristeva heldur því fram i 68 TMM 1997:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.