Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1997, Page 91

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1997, Page 91
ATHUGASEMDIR eigin vasa; því ekki er Malvólíó svo þefvís að það verði mér að falli (ég verð aldrei flengdur fyrir þau fjársvik sem hann snuðrar uppi); auk þess er daman mín af betra fólki (og þarf því ekki á ölmusu að halda), og svo er ekki veitingahúsið (Mirmídonarnir) sem ég stunda nein ódýr knæpa (svo mér veitir ekkert af þessu). (1964) 3.1.155. „Sú túlkun brytist beinna en orð mín þyldu, að bónorð mittsé lausnfrá þinni skyldu; úr öllum rökum er sá þráður spunninn, að ást er Ijúf, oggefin betri en unnin.“ Þessar fjórar línur hefur þýð. skilið á nokkuð annan veg en tíðkast, og hagað orðum samkvæmt því. Þó er haldið opinni leið til þess skilnings, sem útgefendur hafa hér lagt í ffumtextann, en hann hljóðar svo: „Do not extort thy reasonsfrom this clause; For that I woo, thou therefore hast no cause; But rather reason thus with reason fetter, Love sought is good, butgiven unsought is better.“ Með þessum orðum telja útgefendur helzt, að Ólivía segi sem svo: „Þú mátt ekki sýna mér kalt viðmót, þó ég, konan, fari svo aftanað siðunum að bera fram bónorðið; hafðu það í huga, að endaþótt góð sé sú konuást, sem fengin er fýrir bónorð, þá er betra fyrir manninn að þiggja það að konan gefi honum ást sína án þess að hann leiti eftir.“ - Hér er talið að Ólivía segi einungis: „Láttu mig nú ekki vera að toga útúr þér bónorðið; það var allsekki ædun mín að taka af þér ómak; og þú ættir að skilja, að þér ber að gera það mér til geðs að elska mig ótilkvaddur." - Ástæðan til þess, hve Ólivía er hispurslaus í öllu þessu samtali, er sú, að hún er sannfærð um að Sesaríó hafi fengið ást á sér og reyni að fela það bakvið kuldalegt viðmót, þótt honum hinsvegar takist það ekki, enda sé ást, sem eigi að dylja, jafn-augljós og morðsök. Ólivía lætur sér vel líka háðssvipinn á andliti Sesaríós, því hún er sannfærð um að hann sé einungis gríma ástarinnar. Hún hefur í öllu reynt að koma til móts við hann, gefið honum undir fótinn í orði og síðan beðið hann að tala (þ.e.a.s. biðja sín), tekið ómjúk tilsvör hans sem marklaus undanbrögð og reynt að nýju að hjálpa honum af stað. Og að lokum stígur hún sporið fullt og játar honum ást sína að fyrra bragði, og það með engum semingi. En þegar jafnvel það virðist ekki ætla að losa um málbeinið á Sesaríó, heldur Ólivía áfram: „Nú mátt þú ekki draga þá röngu ályktun af ástarjátningu minni, að bónorð mitt geri bónorð þitt óþarft; láttu þér heldur skiljast, að sú ást, sem mér þykir að vísu gott að sækja til þín, væri mér þó enn dýrmætari, ef þú gæfir mér hana án þess ég bæði þig um hana.“ (1964) TMM 1997:4 89
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.