Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2000, Page 17

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2000, Page 17
DAGRENNING NORRÆNNAR SÖGU þetta viðhorf er nú ráðandi í nútímasagnfr æði, eins og allir vita sem hafa far- ið í víkingasafnið í Jórvík.13 Annað sem Sigurður Nordal ræðir er hið flókna samband eðlis og um- hverfis og skipar hann sér í hóp „mótunarsinna“ nútímans enda snýst rit hans gjörvallt um samband bókmennta og umhverfis þess, lista og menning- ar. Þetta orðar hann svo: „eigi sagnfræðin um það tvennt að velja að skýra einkenni og örlög þjóðarinnar af ætterni eða menningu, verður hún hiklaust fremur að taka síðari kostinn." (79) Á þessum forsendum hafhar hann öllum hugmyndum um að ættgöfgi landsmanna hafi haft áhrif á sögu þjóðarinnar og tekur á þann hátt afstöðu gegn hvers konar kynþáttahyggju. Þó er stund- um engu líkara en að umfjöllun hans um íslendinga sé mótuð af hugmynd um óljóst þjóðareðli. Á þessu sést hvílíkur styrkur Sigurði Nordal var af heimspekiþekkingu sinni, á tíð þegar norrænuff æðingar voru almennt ekki heimspekimenntað- ir. Á hinn bóginn þiggur hann stundum íhaldssöm viðhorf ffá öðrum vegna skorts á gagnrýnni afstöðu í t.d. sagnfræði. Þetta kemur fram í umfjöllun hans um Harald hárfagra Noregskonung. Hann afgreiðir hina gagnrýnu stefnu Weibullbræðra og fylgismanna þeirra með því að „auðveldara [sé] fyrir sögukönnuði nútímans að bera brigður á fornar heimildir en fá aðra ör- uggari vitneskju í þeirra stað.“ (59) Hann telur líka „órengt: að Haraldur hafi fyrstur orðið einvaldskonungur í Noregi ogþað hafi gerzt seint á 9. öld“ (59). En það er nú einmitt meinið og nú hefur tilvist Haralds verið dregin mjög í efa.14 Sigurður Nordal fjallar í einum kafla um þann þátt í lífssýn íslenska mið- aldamannsins sem hann nefnir „drengskap" (186-199). Um þetta hugtak fjallar hann rækilega og telur það óþýðanlegt, rétt eins og enska orðið „gentleman". Og um leið rifjast upp fyrir nútímalesendum að konur eru nánast með öllu fjarverandi úr þessari menningarsögu Sigurðar Nordals. í bókinni er aðeins eitt kyn - íslendingurinn er karlkyns. Að því leyti er hún barn síns tíma. Sigurður Nordal spennti bogann hátt í íslenzkri menningu. Þegar ýmsar hugmyndir í ritinu eru bornar saman við nútímaviðhorf er niðurstaðan sú að sumar eru eins og þær hafi verið settar fram í gær, aðrar skírskota augljós- lega til horfins tíðaranda. Þar með er ekki felldur áfellisdómur yfir ritinu. Sigurður Nordal ætlaði sér ekki þá dul að setja saman verk sem yrði alltaf eins og nýtt, til þess gerði hann sér of skýra grein fýrir samspili tíðaranda, um- hverfis og lista. íslenzk menning er rit sem um sumt er enn í fullu gildi, að öðru leyti ekki. En það heldur fullu gildi sem texti um samtímann, hluti af bókmenntum 20. aldar. Islenzk menning er góður texti, aldrei flatneskjulegur eða stirður heldur TMM 2000:1 www.malogmenning.is 7
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.