Allt um íþróttir - 01.10.1953, Blaðsíða 10
37. mín.: Norðmönnum mis-
tekst hornspyrna.
38. mín.: Helgi ver skot frá
Kjell Kristiansen.
40. mín.: Gunnar Thoresen
spyrnir yfir þverslá.
41. mín.: Upphlaup af Islend-
inga hálfu. Gunnar gefur knött-
inn fyrir til Þórðar, sem skallar
yfir þverslá.
42. mín.: Helgi ver skot frá
Ivjell Kristiansen.
43. mín.: Gunnar Dybwad
spyrnir af ca. 10 metra færi, en
Helgi ver prýðilega.
44. mín.: Ríkharður kemst inn
fyrir vörn Norðmanna, en spyrn-
ir yfir þverslá.
45. mín.: Gunnar Dybwad
spyrnir fram hjá marki.
Leiknum lauk því með sigri
Norðmanna, 3:1.
Þeessir leikir eru lærdómsríkir
fyrir Islendinga að mörgu leyti:
1. Lansleikir á erlendri grund
eiga ekki að fara fram fyrr
en í fyrsta lagi í september.
2. Það verður að vinna að því
að koma upp grasvöllum og
að öll íslenzk knattspyrna
fari fram á grasvöllum, þá
fyrst er hægt að' gera kröfur
til íslenzkra kriattspyrnu-
manna.
Að lokum þetta: íslenzka
landsliðið stóð sig vel, miðað við
allar aðstæður.
Framhald af 1. síðu
liugstætt, þá er hann tekur að
sér ábyrgðarstörf.
Forystumenn þessara mála
verða að gera sér ljóst, að við
erum víða langt á eftir frænd-
þjóðum okkar á Norðurlöndum,
en einmitt þangað getum við
sótt óteljandi fyrinnyndir og
lagað þær eftir okkar eigin þörf-
um. Framkvæmd og skipulagn-
ingu hinnar frjálsu íþróttastarf-
semi í landinu verður að gera
þannig úr garði, að hún fullnægi
kröfum tímans og beri jafnframt
vott um, að hér á landi býr fram-
sækin íþrótta- og menningar-
þjóð, en ekki hálfvolgir og 'sof-
and meðalmenn, sem láta allt
skeika að sköpuðu.
8
í Þ R'Ó T T IR