Allt um íþróttir - 01.10.1953, Blaðsíða 42
því að dæma. Ég vona, að það
sé góðs viti eins og oft hefur
komið fyrir í sumar, að dómarar
hafa komið til mín og beðið um
að fá að daeraa leiki. Þegar fé-
lagið hefur fengið marga slíka
menn, þá er þeirri hlið knatt-
spyrnumálanna borgið.
Var ekki haldið námskeið í
vor fyrir héraðsdómara?
— Við skrifuðum KRR í vor
og tilkynntum, að við ætluðum
að gangast fyrir námskeiði. IvRR
skrifáði svo félögunum og ósk-
aði þess að þau sendu nemendur
á námskeiðið. Þegar umsóknar-
fresturinn var útrunninn hafði
enginn gefið sig fram til þátt-
töku. Ég álít að þarna hafi sof-
andaháttur félaganna gagnvart
Knattspyrnudómarafél. komið
einna skýrast í Ijós. Félögin
heimta dómara og línuverði, en
þegar þau eru beðin um dómara-
efni þá fáum við ef ti! vill enga
nemendur frá þeim. Það er
staðreynd, að'knattspyrnan get-
ur staðið og fallið, eftir því
hvernig starf dómara er innt af
hendi. Þess vegna mega félögin
ekki láta þessa h]ið málsins fljóta
sofandi að feigðarósi, en sjá um
að dómarafélagið hafi alltaf nóg
af ungum mönnum, sem vilja
gerast knattspyrnudómarar. —
KDR verður aldrei nema spegil-
mynd af félögunnm.
— Hvernig skiptast dómar-
arnir, sem dæmt hafa í sumar,
niður á félögin?
— Þróttur 2, Víkingur 4,
Fram 5, Valur 5, KR 11.
Fjórir dómarar hafa tekið
landspróf í sumar, það eru þeir:
Haraldur Gíslason, Guðbjörn
Jónsson, Steinn Steinsson og
Halldór V. Sigurðsson.
— Ert þú ánægður með móta-
fyrirkomulagið?
— Nei, ég álít að það megi
bæta það mikið. Það ætti helzt
að ákveða alla leiki að vetrinum
til, sem leika á sumarið eftir; þar
með taldir erlendir leikir. Þá
gæti dómarafélagið einnig að
vetrinum til raðað niður öllum
leikjum sumarsins. IvRR ætti
svo að láta ])i'enta skrá með
leikjum og nöfnum dómara, sem
eiga að dæma. Þessar skrár yrðu
svo hafðar til sýnis í öllum fé-
lagsheimilunum. Það er ótrúlega
erfitt að útvega dómara á 7 leiki,
sem fara eiga fram á einum degi,
þegar frestur er aðeins tveir
dagar eða skemmri. Eg vona, að
knattspyrnuþingið, sem bráð-
lega kemur saman, finni beti-i
lausn á þessu máli en verið hef-
ur.
— Hvernig liefur þér fallið
við mótanefndirnar? N
— Yfirleitt vel, þær hafa ver-
ið samvinnuþýðar, en þó held
ég að þeim hafi fundizt ég of
grimmur á köflum.
40
ÍÞRÓTTIR