Allt um íþróttir - 01.10.1953, Blaðsíða 27
mér trú um, að ég gæti sigrað
Marciano, en hann sannaði mér
það áþreifanlega, að mér var það
ekki unnt. Hins vegar má hann
eiga von á mér síðar.
Marciano: La Starza var mér
erfið'ur og veitti mér mikla
keppni. Eg lét dynja yfir hann
höggum af öllum þeim krafti
sem ég ræð yfir og ég fyllist virð-
ingu fyrir honum, ])egar ég hugsa
til þess, hve mikið hann þoldi af
þungum höggum (ég vissi að ég
hitti hann oft svo um munaði),
án þess að leggja árar í bát.
Hann kom líka á mig miklum
höggum, einkum í byrjun, en
eftir að hann meiddist í vinstri
hendinni var hann aldrei veru-
lega hættulegur.
Enqu betra en hér
í borginni Pasadena í Kali-
forníu var efnt til mikils frjáls-
íþróttamóts hinn 11. júlí s.l. A
þessu móti setti Fortune Gordien
heimsmet í kringlukasti .58.10
m, og landi hans, Martin Engel,
setti einnig á sama móti nýtt
landsmet í sleggjukasti 59.55 m.
Þetta tvennt er lesendum reynd-
ar þegar kunnugt, en hitt vita
færri, að aðeins 48 — fjörutíu og
átta — manns greiddu aðgangs-
evir, sem áhorfendur að þessari
frjálsíþróttákeppni og sennilega
er þetta minnsti hópur áhorf-
enda, sem verið hefur sjónarvott-
ur að nýju héimsmeti í viður-
kenndri íþróttagrein.
Iteyndar er það stórfurðulegt,
hve lítill áhugi virðist vera hjá
öllum almenningi þar vestra
fvrir frjálsum íþróttum, þegar
tillit er tekið til þess, að ein-
mitt Bandaríkjamenn eiga met-
hafana í flestum greinum frjálsu
íþróttanna. Meistaramót stud-
enta í frjálsum íþróttum var í
ár haldið í New York og voru
áhorfendur ekki nema 700, og
miðað' við fólksfjölda eins og svo
oft er í gamni gert, þá mættum
við hér heima ])akka fyrir, ef
allir starfsmenn við'slík mót létu
sjá sig á vellinum..
iÞRÓTTIR
25