Allt um íþróttir - 01.10.1953, Blaðsíða 28
Hcmdknattleiksmót íslands
Handknattleiksmeistaramót
íslands, utanlníss, í kven- og
karlaflokki var að' þessu sinni
liáð í Reykjavík og stóð yfir frá
29. ágúst til 10. september. Mót-
inu var valinn staður á hinu
nýja íþróttasvæði Ivnattspyrnu-
félags Reykjavíkur í Kaplaskjóli
og höfðu þar verið útbúnir tveir
leikvellir, annar af stærðinni
20X40 metrar fyrir kvenflokk-
ana, en hinn 25X50 metrar fyrir
karlaflokkana og mun það vera
í fyrsta sinn sem keppt er á svo
stórum handknattleiksvelli hér-
lendis.
Keppnin í báðum flokkunum
liófst samtímis laugard. 29. ág.
s.l. og verður hér rakinn gangur
mótsins í stórum dráttum.
I kvenflokki tóku þátt fjórir
flokkar frá eftirgreindum aðil-
um: Iþróttabandalagi ísafjarðar,
Knattspyrnufél. Fram, Knatt-
spyrnufélagi Reykjavíkur og
Knattspyrnufélaginu Tý í Vest-
mannaeyjum. Keppni kven-
fólksins var að þessu sinni ekki
eins skemmtileg og oft áður á
útimótum. Það var í öllum leikj-
unum meira og minna áberandi,
að kappið og keppnisgleðin fór
ekki saman yfir heildina tekið,
enda þótt þrír flokkarnir væru
ákaflega jafnir að styrkleika og
því full ástæða fyrir hvern ein-
stakling að gera sitt bezta. Hér
verð ég þó að undanskilja flokk
íþróttabandalags ísfirðinga, sem
í öllum sínum leikjum var þrung-
inn leikgleði og dugnaði, enda
fór keppnin svo, að' flokkur
þeirra sigraði, og kom þar með
skemmtilega á óvart, þar sem
almennt var búizt við því, að
baráttan um sigurinn stæði milli
Týs og Fram. Skemmtilegasti
leikurinn var milli utanbæjarlið-
anna ÍBÍ og Týs og virtist leik-
urinn þróast þannig í byrjun, að
Týr myndi ganga með sigur af
hólmi, en er líða tók á síðari
hálfleik kom í ljós, að ísfirðing-
amir höfðu betra úthald, þó
aldrei næð'u þær hreinum yfir-
tökum í leiknum og er um það
bil ein mínúta var eftir af leikn-
•um höfðu ísfirðingarnir 4—3, en
á síðustu stundu tókst Tý að
jafna metin og verður ekki ann-
að sagt, en úrslitin hafi verið
réttlát.
26
íþróttib