Allt um íþróttir - 01.10.1953, Blaðsíða 14
Það gerði hann, en varð síðan
við beiðni mannanna um að æfa
sig í skíðastökki og síðan fór
hann til Bandaríkjanna og tók
þátt í mótinu. Og hann kom
heim til Noregs sem heims-
heimstari í skíðastökki.
Nokkru síðar tók hann þátt í
starfsíþróttamóti. Og þar vann
iiann fyrstu verðalun fyrir trakt-
orsplægingu.
Þannig á þetta að vera, sagði
Ami. Við' Islendingar erum svo
fámennir, að við höfum ekki efni
á að ala upp eina stétt manna
sem heitir íþróttamenn. Iþrótta-
mennirnir verða að vera hlut-
gengir til hagnýtra starfa fyrir
þjóðfélagið — og til þess að gera
einstaklinginn sem hæfastan í
þeim efnum eru starfsíþróttirn-
ar.
Sviðið fyrir starfsíþróttir er
nær óendanlegt. Það geta allir
tekið upp. Myndi það til dæmis
ekki vera ánægjuauki, ef fólk á
skrifstofum keppti í vélritun, eða
fólk í verzlunum í því að' pakka
inn. Það eykur á fjölbreytnina
í hinu daglega þrasi, jafnframt
sem það vekur skilning á starf-
inu og aukna ánægju af því.
Knattspyrna
20. ágúst 1916 fór fram í
Stokkhólmi fyrsti og eini lands-
leikur Svía við Bandaríkjamenn
fram til þessa. Bandaríkin sendu
ekki úrval, heldur var eitt félag
sent út af örkinni, sem landslið
og hét það Betlehem Steel. Ekki
þótti Svíunum Bandaríkjamenn-
irnir kunna sérlega mikið fyrir
sér í knattspyrnulistinni, en
samt sem áður fóru leikar þann-
ig, að Bandaríkjamenn sigruðu
með 3 mörgum gegn 2.
Svíar líta enn þann dag í dag
á þetta tap sem svartan punkt
í knattspyrnusögu sinni.
Urslitamarkið gerðu Banda-
rikjamenn þannig. Risi mikill,
að nafni Spalding, lék sem bak-
vörð'ur. Iíann var yfir 100 kíló
að þyngd hermir sagan og nærri
tveir metrar á hæð. Er langt var
liðið á leikinn bar svo við, að
þessi kraftamaður gefur knettin-
um gífurlegt spark rétt utan við
sín vítateigsmörk Knötturinn
hófst til skýjanna og kom ekki
niður fyrr en fyrir innan víta-
teig sænska liðsisn. Markvörð-
urinn hljóp móti knettinum, en
reiknaði hann rangt út, þannig,
að hann sveif yfir höfuð honum,
féll til jarð'ar og rúllaði síðan
inn í tómt markið. Með vissu
einkennilegasta mark, sem
sænska landsliðið hefur fengið á
sig.
12
ÍÞRÓTTIR