Allt um íþróttir - 01.10.1953, Blaðsíða 30
æfa ekki nema svo sem hálfan
mánuð rétt fyrir kepnnina. Með-
an svo er ástatt, er vart hægt.
að segja, að þeir hafi kynnzt
íþróttinni svo nokkru nemi.
Flestir kunna jú að grípa bolt-
ann og álíta síðan með sjálfum
sér, að' með þeirri list hafi þeir
náð' slíkri fullkomnun í hand-
knattleik, að ekkert sé þeim ó-
lært. Vegna þessa ríkjandi hugs-
unarháttar er ekki um framför
að ræða og verður ekki, fyrr en
tekizt hefur að fá handknatt-
leiksmenn til að slýilja það, að
nauðsynlegt er að æfa og æfa
vel til þess að geta náð þeim leik-
þroska og tækni, sem íþróttin
hefur upp á að bjóða.
Handknattleiksráð' Reykja-
víkur átti að sjá um þessa
keppni, sem reyndar var ráðgert
að hæfist 1. ágúst. En er langt
var liðið á mánuðinn og í ljós
kom, að Handknattleiksráðið
var ekki þess umkomið að sjá
um framkvæmd keppninnar, tók
ÍBR við hlutverki ráðsins og
kom mótinu af stað og sá um
það að öllu leyti. Mótið hafði
lítið aðdráttarafl gagnvart á-
hafendum, enda Htið gert til
þess að auglýsa það.
Að lokum vill sá, sem þetta
ritar, koma því á framfæri \ ið
hlutaðeigendur, hvort ekki væri
rétt íþróttarinnar vegna, að ut-
anhússmótum í handknattleik
væri ætlaður staður úti á landi,
þar sem öll meistaramót innan-
húss fara fram hér í Reykjavík.
Slík ráðstöfun væri mjög líkleg
til þess að kveikja áhuga í
byggðalögunum úti um land fyr-
ir íþróttinni.
Hér fylgir að' lokum skrá um
einstaka Jeiki mótsins:
Kvenflokkur:
Fram—KR 5—1
ísafj.—Týr 4—4
Týr—F ram 4—2
ísafj.—KR 6—1
Týr—KR 4—2
Isafj.—Fram 4—3
Karlaflokkur:
IR—KR 9—
Ármann—V íkingur 23—:
ÍR—Þróttur 11—
Ármann—KR 15—
Ármann—ÍR 15—
Víkingur—Þróttur 12—
KR—Þróttur 16—
ÍR—Víkingur 19—
Ármann—Þróttur 10—
KR—Víkingur. Víkingur
leikinn.
28
ÍÞRÓTTIR