Allt um íþróttir - 01.10.1953, Blaðsíða 48
andi heimsmet með því að varpa
kringlunni 58.10 metra hinn 11.
júlí s.l. á íþróttamóti í Pasadena.
I ágúst s.l. sannaði hann enn einu
sinni ágæti sitt með því að kasta
59.32 m, sem í fljótu bragði virð-
ist ótrúlegur árangur. Getu
Ameríkananna virðist engin tak-
mörk sett og því getum við tek-
ið undir með Svíanum Harold
Anderson, er hann segir: „Eg
verð myrkfælinn þegar þeir (fyr-
ir vestan) hafa náð 60 metrun-
um“. Það er síður en svo ólík-
legt, að' slíkt sé mögulegt fyrr
eða síðar.
17 menn hafa varpað
yfir 53 metra
Alls liafa nú 17 menn í heim-
inum kastað kringlunni yfir 53
jnetra og er það álitlegur fjöldi.
Ef við tökum stigatöfluna til
hliðsjónar, er við tökum einstök
afrek fyrir og athugiun þau, þá
sjáum við hve frábær árangur
Gordiens er, þar sem árangur
hans gefur fleiri stig en stangar-
stökksárangur Warmerdams.
Annars er það svo með stiga-
töfluna, að hún er ekki fyllileg-
ur mælikvarði á árangrana, því
miður. Hugsið ylckur til dæmis,
kúluvarpari þarf að ná 18.27 m,
kringlukastari 58.45 m og spjót-
kastari 80.37 m, sleggjukastari
62.04, til þess að að ná sama
stigafjölda og La Beach og Mel
Patton í 200 metra hlaupinu.
Hugsið ykkur bara lesendur
góðir, ef árangur negrans Ralph
Metcalfe, sem hann náði í 200
metra lilaupi í Toranto 3. sept-
ember 1932 og hljóðaði upp á
19.8 sekúndur, hefði verið við-
urkenndur sem heimsmet. Sam-
kvæmt stigatöflunni þyrfti kúlu-
varpari að ná tæpum 19 —
nítján — metrum til þess að ná
þeirri stigatöflu, sem afrek Mat-
calfs gefur. Afrek hans var að
vísu, ekki við'urkennt, þar sem
meðvindur átti töluverðan þátt
í þessum annars svo ágæta ár-
angri.
Olckur finnst enginn vafi leika
á því, að hið nýja heimsmet
Gordiens eigi aðeins einn jafn-
ingja og það er met Warmer-
dams í stangarstökkinu 4.77
metrar. Hvorki kúluvarpsárang-
ur O’Briens eða árangur Pattons
og La Beachs finnst olckur kom-
ast í hálfkvisti við hina tvo fyrr-
nefndu.
íÞRÓTTIR
46