Allt um íþróttir - 01.10.1953, Blaðsíða 37
Áhöfn Ármanns skipuðu: Áki
Lúð'víksson, Haukur Hafliðason,
Magnús Þórarinsson, Ólafur
Nielsen og Stefán Jónsson, stýri-
maður.
Septemberbikarinn vann Ár-
mann nú í fyrsta sinn, en hand-
hafi hans var RFR.
Áhöfn Ármanns skipuðu:
Haukur Hafliðason, Snorri 01-
afsson, Áki Lúðvíksson, Ólafur
Nielsen og Stefán Jónssop, stýri-
maður.
Allar keppnir fram að síðustu
heimsstyrjöld vann Ármann, en
frá því aftur var farið að keppa
í róðri 1951 og þar til nú hafa
farið fram, samkvæmt framan-
sögu, alls 9 keppnir, þar af hef-
ur RFR unnið 6 en RDÁ 3.
Um keppnistímabilið í ár má
segja, að það' hafi verið haldið
of seint. Menn eru fjarverandi
úr bænum, sumarleyfin falla inn
í æfingatímann og hafa þau oft-
lega skemmt fyrir vel samæfðum
áhöfnum. Aðal-keppnum ársins
á að vera lokið fyrir 1. ggúst.
Óhætt er að fullyrða, að sum-
arið í sumar, hafi haft góð áhrif
á keppendur beggja félaganna.
Sigrarnir hafa skipzt á milli fé-
laganna og það hefur að sjálf-
sögðu örfað aftur áhugann.
Hins vegar verður að játa, að
enn sem komið er, skortir mikið
á, að þátttakan í róðrinum sé
nógu almenn. Það er eins og
menn viti ekki ,að róður er eitt
hið skemmtilegasta „sport“ sem
til er, því að annað er varla á-
stæðan hjá eins mikilli „víkinga-
þjóð“ og vér Islendingar erum.
I róðri er enginn skyldugur að
keppa. Menn geta stundað hann
í báðum félögunum sér til
skemmtunar og afþreyingar, en
þeir sem vilja keppa fá tækifæri
til þess, svo fremi þeir þjálfi vel
og reglulega.
Beztu undirstöðuna og árang-
ursríkustu fyrir „sjómennskuna“
fá menn við inniæfingar í þar til
gerðum róðrarvélum. I þeim er
undirstaðan, róðrartækni, æfð og
áhafnir samæfðar. Bæði félögin
hafa ákveðið að æfa inni í vetur
og ættu þeir, sem „fylgjast vilja
með frá byrjun“, að hafa sam-
band við formenn félaganna sem
fyrst, við þá Ludvig Siemsen
(RFR), sími 4017, eða Stefán
Jónsson (RDÁ), sími 2943.
ÍÞRÓTTIR
35