Allt um íþróttir - 01.10.1953, Blaðsíða 57
Islandsmótið 1953
í september lauk einu sér-
stæðasta íslandsmeistaramóti í
knattspyrnu, sem um getur í 42
ára sögu mótsins. Þetta Tslands-
mót er orðin spegilmynd af því
skipulagsleysi, sem ríkjandi er
orðið í knattspyrnumálum okk-
ar. Enda voru það orð að sönnu,
sem einn orðheppinn knatt-
spyrnuáhorfandi lét sér um
munn fara, að aflokninni tveggja
mánaða hvíld um hásumarið,
um forystu þessara mála: Þeir
vilja orðið emja mótaleiki, bara
landsleiki og dnnslciki.
Það er einnig hlægilegt, að á
því herrans ári 1953, er ísland
skal heyja 3 landsleiki í knatt-
spyrnu, að til skuli vera í reglu-
gerð knattspyrnusambandsins
sú fáránlega regla, að fjölgi þátt-
takandi liðum um eitt frá þeim
fjölda, sem verið hefur fastur um
nokkur ár, skuli leikjum á félag
fækka úr 4 (þótti víst allt of
mikið) í 2 með undantekningu,
sem úrslitaleikurinn gerði. Enda
þótt Knattspyrnusambandið
hafi átt að lieita æðsti aðili þess-
ara mála, hefur það þó allt frá
stofnun þess látið' bjóða sér, að
aðal knattspyrnumót ársins,
helzti viðburðurinn, íslandsmót-
ið, skuli fá slíkan umbúnað, að
því sé þrengt inn á milli heim-
sóknanna á örfáa daga, með
þeim afleiðingum, að tvívegis á
3 árum hefur mótið hreinlega
verið eyðilagt, fyrst íþróttalega
séð, en í ár keyrði alveg um
þverbak, er mótið var gert að
engii, bæði íþróttalega og fjár-
hagslega.
Sú skipan var á þessu í sum-
ar, að Þróttur bættist í hóp þátt-
takenda í mótinu, og varð þá að
skipta liðum í 2 riðla. Lentu KR,
Fram og Akurnesingar í öðrum;
en Valur, Víkingur og Þróttur í
hinum. í fyrri riðlinum fóru leik-
ar þannig, að Akurnesingar báru
sigur úr býtum, sigruðu Fram
með 4:1, KR með 4 :0, en KR
sigraði Fram með 3 : 1. f hinum
riðlinum bar Valur sigur úr být-
um, sigraði Þrótt með .... og
Víking með ....... en Víkingur
sigraði Þrótt með 4:0.
Eftir dúk og disk fór síðan
úrslitaleikur mótsins milli Vals
og Akurnesinga fram sunnudag-
inn 6. september. Varð hann að
lokum einn sögulegasti leikur,
sem hér hefur farið fram síðan
ÍÞRÓTTIR
55