Allt um íþróttir - 01.10.1953, Blaðsíða 55
Þórður Sigurðsson (KR) setti
nýtt meistaramótsmet í sleggju-
kasti, með 48.00 m kasti, og
skorti því 2 sm. á íslenzka metið.
Hann hefur aukið snúningshrað-
ann, en virtist ekki ráða alveg
við sig í hringnum, því mörg
köst hans urðu ógild, þ. á. m. eitt
ca. 2 m lengra en lengsta gilda
kastið. Þorvarður Arinbjarnar-
son er í stöðugri framför í þess-
ari grein. Hann er stór og sterk-
ur og hefur góðan stíl, en skortir
snerpu í snúningana.
Urslit urðu þessi:
1. Þórður Sigurðsson (KR)
48.00 m.
2. Þorvarður Arinbjamarson
(UMFK) 44.52 m.
3. Páll Jónsson (KR) 43.91 m.
4. Þorsteinn Löve (UMFK)
42.97.
Eldra meistaramótsmetið setti
Þórður 1952, 46.83 m.
5000 metra hlaupið fór þann-
ig:
1. Kristján Jóhannsson (ÍR)
15.27.8.
2. Finnbogi Stefánsson (HSÞ)
16.44.6.
3. Þórhallur Guðjónsson (UM-
FK) 17:10.4.
4. Hafsteinn Sveinsson (UMF
Self.) 17.34.4.
Tími Kristjáns er nýtt meist-
aramótsmet, eins og áður er
drepið á, en fyrra metið setti
hann 1952: 15.47.0. Hefði viðrað
betur, hefði íslandsmet hans fok-
ið veg allrar veraldar, og virð-
ist aðeins skorta keppni í góð-
viðri, til þes sað Ivristján hlaupi
5 km undir 15 mínútum. Finn-
bogi og Þórhallur bættu báðir
tíma sína að mun, þrátt fyrir
veðrið.
Urslit í hástökki kvenna urðu
þessi:
1. Inga Birna Guðmundsdóttir
(UMFR) 1.25 m.
2. María Guðmundsdóttir (KA)
1.20 m.
3. Erla Sigurjónsdóttir (UM-
FR) 1.20 m.
Þetta var eina kvennagreinin,
sem ekki sýndi mikla. afturför
frá fyrri meistaramótum, en
meistari í fvrra varð Nína
Sveinsdóttir (Self.) með sömu
hæð, 1.25 m. Islenzku stúlkurn-
ar virðast ekki nenna að æfa
það lengi, að árangur verði af
æfingum að marki, áður er á-
huginn horfinn og þær hættar
að keppa. Ef til vill sýna for-
ráðamenn íþróttanna ekki stúlk-
unum tilhlýðilega ræktarsemi og
kannske eiga íþróttir ekki erindi
til íslenzkra stúlkna, en það er
víst, að þátttaka kvenna í íþrótt-
um er tiltölulega miklu minni og
lélegri hér á landi en annars
staðar.
4X100 m boðhlaup var búizt
við, að yrði spennandi keppni
milli Ármanns og KR, en það
ÍÞRÓTTIR
53