Allt um íþróttir - 01.10.1953, Blaðsíða 52
höndum sem íþróttamaður, ef
hann heldur áfram að æfa vel
og reglubundið. Hann er stór, en
óharðnaður enn, enda ekki nema
19 ára. Friðrik Guðmundsson
(KR) hljóp af stað með Pétri,
en varð viðskila við hann á
miðri leið. Tími hans var 20.5
sek. I fyrra varð Tómas Lárus-
son (UMSK) meistari á 16.3 sek.
I landstökki voru sjö kepp-
endur. Keppnin var samt dauf
og lítið skemmtileg. Torfi er í
engri langstökksæfingu, og sýndi
það sig brátt. Atrennan vitlaus
stökk eftir stökk, og Torffi hristi
hausinn. Sigurður kom beint úr
hástökkinu og því ekki upplagð-
ur. Garðar er skemmtilegur
íþróttamaður, kraftmikill og
fjaðurmagnaur, en lágur vexti.
Allir langstökkvararnir hafa gert
mun betur áður, enda virtist at-
rennubrautin helzt til laus í sér.
Urslit urðu þessi:
1. Torfi Bryngeirsson (KR)
6.79 m. >
2. Sigurður Friðfinnsson (FH)
6.68 m.
3. Garðar Arason (UMSK) 6.30
m.
4. Vilhjálmur Einarsson (UÍA)
6.19 m.
Meistari 1952 varð Tómas
Lárusson (UMSK), stökk 6.67
metra.
Spjótkastið' vann Jóel Sigurðs-
son (ÍR) með 57.30 m kasti, og
hefur hann verið óslitið meistari
í þeirri grein síðan 1946, eða 8
ár í röð. A undan honum var
(,,Spjóta“-) Jón Hjartar (KR)
meistari 6 ár í röð, svo frá 1940
hafa aðeins 2 menn orðið Is-
landsmeistarar í spjótkasti. Jón
Vídalín frá Siglufirði er liðlegur
kastari og sýndi styrkleika sinn
m. a. með að vinna Halldór Sig-
urgeirsson (A).
Urslit urðu þessi:
1. Jóel Sigurðsosn (ÍR) 57.30 m.
2. Jón Vídalín (KS) 52.45 m.
3. Halldór Sigurgeirsson (A)
50.57 m.
4. Vilhjálmur Þórhallsson (UM-
FK) 49.84 m.
I fyrra vann Jóel á 58.51 m
kasti.
Kúluvarp kvenna vann Gísl-
ína Oskarsdóttir (Þór), sem geklc
inn í keppnina, þegar önnur af
tveim skráðum mætti ekki til
leiks Hún kastaði 8.90 m, en
María Guðmundsdóttir (KA)
kasatði 8.47 m.
Meistari 1952: Guðrún Kristj-
ánsdóttir (Hvöt) 10.04 m.
400 m hlaup var síðasta grein
dagsins:
1. Guðmundur Lárusson (A)
49.5 sek.
2. Þórir Þorsteinsson (A) 50.8
sek.
3. Leifur Tómasson (KA) 51.1
sek.
4. Hreiðar Jónsson (A) 52.2 sek.
50
ÍÞRÓTTIR