Allt um íþróttir - 01.10.1953, Page 22

Allt um íþróttir - 01.10.1953, Page 22
Heimsmeistarakeppni í hnefaleik Marciano — La Starza Heimsmeistarinn í þungavigt, Rockey Marciano, vex nú stöð- ugt í áliti vestrænna hnefa- leikasérfræðinga og ekki skörtir hann við'urnefnin frekar en aðra fyrirrennara sína í hnefaleika- hringnum, en vinsælasta viður- nefnið mun þessa stundina vera „The Brockten Block Buster“. Sumir sérfræðingar víla ekki fyrir sér að lialda því fram, að Marciano slái hin mestu og þyngstu högg, sem sézt hafi í hnefaleikahring og víst er, að árangur lians frá því hann gerð- ist atvinnumaður, er alveg frá- bær. Samtals hefur hann háð á þeim tíma 44 leiki og ekki tapað einum einasta þeirra. Enginn annar hinna 18 þungaviktar- meistara síðari tíma hefur verið jafn sigursæll. Maður heitir Nat Fleischer, viðurkenndur hnefaleikasérfræð'- ingur vestanhafs. Hann tókst á hendur ferð til Evrópu í þeim tilgangi að kynna sér, hvort nokkur hnefaleikamaður í þeirri heimsálfu myndi líklegur til að veita Marciano keppni, en sneri fljótlega aftur heimleiðis og lýsti því yfir, að hnefaleikamönnum þaðan þýddi ekkert að ota sam- an við hann. Eftir Fleischer er það haft, að Marciano sé aðeins hægt að' jafna við tvo forna meistara, þá John L. Sullivan og Jack Demp- sey, en hins vegar vildi hann ekki fullyrða, að högg Marcianos væru þyngri en hins mikla John L., eða áhlaup hans í hringnum enþá villtari en „maneater Jack’s“. En hins vegar var hann viss um eitt atriði: Eins og ]úð getið ímyndað ykkur eru hinir voldugu hnefaleikamenn oft miklir matgoggar og Fleischer segist aldrei liafa fvrir hitt ann- að eins átvagl og Marciano. Charley Goldman, þjálfari hans, barmar sér ekki ósjaldan yfir því, að skjólstæðingur sinn borði ekki aðeins eins og hestur á vanalegum matmálstímum, held- ur auð'gi sjálfan sig ríkulega af vítamínum á milli máltíða, sem álíta verður 'síður en svo heppi- legt fyrir íþróttamann sem stundar stranga þjálfun — ég verð daglega að framkvæma húsrannsókn í híbýlum hans og 20 ÍÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.