Allt um íþróttir - 01.10.1953, Síða 38

Allt um íþróttir - 01.10.1953, Síða 38
Ársþing í. S. í. á Akranesi íþróttaþing í. S. í. 19.53 var haldið' á Akrgnesi dagana 4. og .5. júlí s.l. Um 60 fulltrúar íþróttasamtakanna í landinu áttu seturétt á þessu þingi, en um 40 munu hafa verið mættir til þings. Fulltrúa vantaði fyrir svæðið frá Borgárnesi og allt norður á Sauðárkrók. Leitt er til þess að vita, að íþróttasamtökin á þessu svæði skyldu ekki senda fulltrúa til þingsins, sértsaklega með tilliti til þess, að fyrir þessu þingi lágu ýmiss mál, sem voru og eru það mikilvæg, að þau varða alla íþróttahreyfinguna í heild. Ekki að'eins á líðandi stund, heldur að minnsta kosti tvö ár fram í tímann, eða allt fram að næsta íþróttaþingi sam- bandsins. Margir fulltrúar áttu lengra að en þeir, sem ekki létu sjá sig, og væri næsta fróðlegt að fá einhverja skýringu á fjar- verunni frá hlutaðeigandi sam- tökum. Því skai fúslega ljáð rúm hér í blaðinu. Að frátöldum ýmsum sam- þykktum og tillögum, er varða hreyfinguna í heild og skýrt hef- ur verið frá í dagblöðunum, má segja, að aðaimál þingsins hafi verið tvö. I fyrsta lagi samskipti íþróttamanna við íþróttamenn úr varnarliðinu og svo umfangs- miklar lagabreytingar í 32. lið- um. Allmiklar umræður urðu á þinginu um, hvort leyfa skyldi íþróttakeppnir milli varnarliðs- manna og íslenzkra íþrótta- manna. Skoðanir um mál þetta eru vafalaust mjög skiptar með- al íþróttamanna sjálfra og svo var einnig meðal fulltrúa á þing- inu. Eftir að fundarstjóri hafði með samþykki fundarmanna skorið' niður umræður, með því að afmarka mönnum ákveðinn ræðutíma, fór að sjá fyrir end- ann á umræðum um málið, og að lokum var samþykkt dag- skrártillaga þess efnis að heim- ila skuli varnarliðsmönnum keppni við íslenzka íþróttamenn eftir sömu reglum, sem gilda gagnvart öðrum útlendum íþróttamönnum. Tillaga þessi fékk tæplega % hluta greiddra atkvæða. Segja má, að fyllsta ástæða hafi legið til grundvallar því, að 36 ÍÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.