Allt um íþróttir - 01.10.1953, Síða 39

Allt um íþróttir - 01.10.1953, Síða 39
þetta mál var lagt fyrir þingið. Að undanförnu liafði sambands- stjórnin sætt nokkurri gagnrýni fyrir að hafa gefið leyfi sitt til íþróttalegra samskipta við varn- arliðsmenn, og er sterkara fyrir samtökin að hafa gert þessa samþykkt, þó fyllstu varúðar beri hins vegar að gæta í sam- skiptum við þessa menn, eftir sem áður. Of langt mál yrði að greina hér frá hinum víð'tæku laga- breytingum, sem samþykktar voru á þinginu, en segja má, að í stórpm dráttum feli þær í sér, að með samþvkkt þeirra kemst öll fjármálastjóm sambandsins loksins saman á eina hendi, enn- fremur hefur átt sér stað inn- byrðis samræming laganna í sambandi við breyttar starfsað- ferðir og skipulagningu. Sambandið hefur alla tíð ver- ið mjög fátækt af veraldlegum auð, þ. e. a. s. peningum, enda er það eðlilegt, þar sem eini fasti tekjustofn þess frá öndverðu hefur verið skatturinn frá banda- lagsfélögunum. Hinn umfangs- mikli rekstur I. S. I. krefst að vonum töluverðra fjármuna. Mikið var rætt um leiðir til þess að koma fjárhagnum í það horf er þörf krefur. Ekki þótti til- tækilegt að hækka skatta á fé- lögunum, en þeir eru kr. 3.00 kr. á hvern starfandi meðlim yfir 16 ára aldur, enda er flestöllum íþróttafélögum það þröngur stakkur skorinn fjárhagslega, að þar er ekki á bætandi. Ejárhags- nefnd þingsisn fékk að vonum mál þetta til meðferðar og bar síðan upp tillögu þess efnis,‘að Alþingi sjái sér fært að taka inn á næstu fjárlög 100 þúsund kr. framlag til I. S. I., til greiðslu á skrifstofukostnaði og launum framkvæmdarstjóra. Tillaga þessi var samþykkt samhljóða og er vonandi, að Alþingi taki jákvæða afstöðu til þessa máls. Eins og áður er getið eru íþróttaþing haldin annað hvert ár. Að vonum þarf margt að ræðast, þegar horft er að baki tveggja ára starfi og lögð' á ráð- in tvö ár fram í tímann. Það kom greinilega fram á þessu þingi, að tíminn, sem því var ætlað að starfa á var of skamm- ur, og væri æskilegt að ákveða fremur ríflegan tíma en hitt, næst er þinga skal. Þrír menn fór úr stjórn sam- bandsins á þessu þingi, þeir Frí- mann Helgason, Þorgeir Svein- bjarnarson og Gunnlaugur J. Briem. Frímann hefur setið sam- fleytt 15 ár í stjórn sambands- ins, en hinir tveir styttra. Þakk- aði forseti I. S. I. þeim öllum vel unnin störf í þágu sambands- ins og tóku fundarmenn undir með lófaklappi. ÍÞRÓTTIR 37

x

Allt um íþróttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.