Allt um íþróttir - 01.10.1953, Page 40
Stjórnarkjör fór þannig, að
forseti var kjörinn Benedikt G.
Waage og meðstjórnendur þeir
Guðjón Einarsson, Konráð
Gíslason, Lúðvík Þorgeirsson og
Gísli Ólafsson.
íþróttabandalag Akraness sá
um allan ytri undirbúning þings-
ins ásamt framkvæmdastjóra
sambandsins, Hermanni Guð-
mundssyni, og eiga þessir aðilar
þakkir skilið fyrir prýðisgott
starf.
Einstaklingshy gg j umenn
Því verður ekki á móti borið,
að skemmtilegt er að sjá snjalla.
knattspyrnumenn leika á fjóra
eða fimm andstæðinga hvern á
eftir öðrum. Þó slíkur „sólóleik-
ur“ sé að öllum jafnaði fram-
kvæmdur á kostnað' liðsins í
heild og mistakist oftastnær, þá
kemur þó stundum fyrir, að slík-
um einkaframkvæmdum ljúki
með því að mark er skorað. Einn
slíkur töframaður með knöttinn
var Uruguayarinn Jose Andrad-
es, sem á Olympíuleikunum í
París 1924 vakti á sér sérstaka
athygli fyrir að geta gert það
við knöttinn, sem hnum sýnd-
ist, burt séð frá öllum hinum 11
mótherjum á vellinum.
Á þessum Olympíuleikjum
sigraði Uruguay Júgóslavíu með
7 mörkum gegn engu. Andrades
lék hægri framvörð af mikilli
snilli eins og nærri má geta, og
er leikar stóðu 5 : 0 sótti hann
knöttinn inn á vítateig síns eigin
lið's, „dribblaði“ síðan með hann
alveg yfir að marki andstæðing-
anna, án þess að þeir fengju við
nokkuð ráðið og skoraði jjötta
markið í leiknum.
Einn frægasti knattspyrnu-
maður Svía fyrr og síðar, Iielge
Ekroth, hafði álíka tilhneigingu
til einleiks og Andrades. Eitt
sinn, er hann var sem ákafastur
að leika á andstæðinga sína,
hvern af öð'rum, heyrðist fyrir-
liði liðsins hrópa til hans:
„Heyrðu, Helgi, þú átt ekki
knöttinn sem leikið er með,
Hvernig væri að reyna að senda
hann einhverntíma til samherj-
anna“.
Augnabliki síðar tókst Ekroth
að leika á þrjá andstæðinga og
að síðustu markvörðinn Á mark-
línunni stöðvar hann knöttinn
og kallar til fyrirliðans: „Heyrðu,
Knútur, hvert átti ég að' senda
knöttinn?“
38
ÍÞRÓTTIR