Allt um íþróttir - 01.10.1953, Side 47
vísu var það ekki Fitch, sem
varð að láta í minni pokann fyr-
ir Consolini í það sinni heldur
núverandi heimsmethafi Gordi-
en. Fitch var þá orðinn atvinnu-
maður. Arangurinn í London
varð ekkert sérstaklega frábær
— miðað við það, sem síðan hef-
ur skeð —, en hugarró og jafn-
aðargeð Italans Consolini færði
honum heim sigurinn í þessari
þýðingarmiklu keppni og er
hann hafði kastað 52.78 m var
sigurinn trvggður. Gordien varð
að láta sér nægja 50.78 m og
þriðja sætið, sem sagt brons-
verðlaunin. Hinn 10. október
samá ár vann Consolini svo það
afrek að setja enn eitt nýtt
heimsmet með því að kasta 55.33
metra.
En nú var röðin komin að
Gordien. Eftir góðan árangur
heimafyrir tor hann í keppnis-
för til Evrópu. Fyrsta keppnin
í þeirri ferð var háð í Lissabon
hinn 9. júlí (1949) og þar setti
Gordien nýtt heimsmet 56.46 m.
Hinn 14. ágúst var Gordien kom-
inn til Svíþjóðar og í keppni
þann dag í Tavastehus setti
hann ennþá einu sinni nýtt
heimsmet með því að varpa
kringlunni 56.97 metra.
Allir bjuggust við, að Gordien
yrði sjálfsagður Olympíumeist-
ari <4rið 1952. En það sannaðist
ennþá einu sinni, að það, sem
menn álíta sjálfsagt að verði,
getur breytzt. Nú fór fyrir hon-
um eins og Fuchs í kúluvarpinu.
Hann varð að láta í minni pok-
ann fyrir landa sínum Sam Iness,
sem sendi kringluna af stað af
sameinuðum krafti og leikni. Við
viljum halda því fram, að fyrsta
kast Sam Iness, sem mældist
vera 53.47 m, hafi gert Gordien
taugaóstyrkan og óvissan. Gor-
dien náði sínum bezta árangri í
öðru kostinu, það var aðeins
52.66 m. Síðan voru köst hans
styttri og styttri og það endaði
með því að hann í síðasta kast-
inu henti aðeins 49.93 m. Gor-
dien fékk ekki einu sinni verð-
laun á þessum Olympíuleikjum
og flestir sérfræðingar héldu, að
■ þessar hrakfarir hans yrðu þess
valdandi, að hann .hefði þegar
sagt sitt síðasta orð og næði sér
aldrei á strik framar. I þessari
keppni \drtist svo sem frekar
væri einhvers að vænta af Con-
solini í framtíðinni, sem árið
1950 setti nýtt Evrópumet 55.47
m og tók síðan silfurverðlaunin
í Héísingfors árið 1952. Samt
var það trú manna, að Iness væri
þeirra beztur og sú trú styrktist
ekki sízt við það, er hann setti
nýtt heimsmet nú í ár með því
að varpa 57.93 m. En Gordien
sannaði gamla máltakið: „Hvað
ungur nemur gamall temur“, er
hann bætti enn einu sinni gild-
TÞRÓTTIR
45