Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2010, Side 65
26. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR 65
Vinsamlegast hafið samband sem fyrst við
Pétur Þór í síma 511 7010 og 847 1600
Fyrir fjársterka aðila leitum við að verkum eftir,
Louisu Matthíasdóttur, Kjarval, Gunnlaug Blöndal,
Þorvald Skúlason og Stórval.
Skipholti 35 | Sími 511 7010 og 847 1600 | petur@galleriborg.is
M Á L V E R K
ATH ! Við tökum lægri sölulaun og eigendur fá uppgert um leið og sala fer fram.
ERUM AÐ UNDIRBÚA LISTMUNAUPPBOÐ
Á laugardaginn er hinn árlegi bik-
ardagur í handboltanum þegar úr-
slitin í karla- og kvennaflokki fara
fram. Hjá körlunum er KFUM-slag-
ur Hauka og Vals á dagskrá klukkan
16:00 en á undan honum, klukkan
13:30, er Reykjavíkurslagur Vals og
Fram, tveggja efstu liðanna í N1-
deild kvenna. Valsmenn hafa unnið
bikarinn undanfarin tvö ár hjá körl-
unum en bæði Fram og Val þyrstir í
titil eftir yfirburði Stjörnunnar und-
anfarin ár.
KFUM-slagur karlanna
Þar til í vikunni voru Haukar og Valur
tvö efstu liðin í N1-deild karla. Vals-
menn hafa þó ekki verið jafnsterkir
eftir áramót og fyrir þau, enda orð-
ið fyrir miklum skakkaföllum hvað
varðar meiðsli og annað. Þeir töp-
uðu í vikunni fyrir HK á heimavelli,
27-25, og misstu þar annað sætið
til FH. Valur hefur þó verið að end-
urheimta menn úr meiðslum eins
og stórskyttuna Erni Hrafn Arnar-
son sem á þó eitthvað í land með
að komast í leikform. Þeir fengu þó
gríðarlega skemmtilega viðbót í lið
sitt í vikunni þegar Rússajeppinn
Sigfús Sigurðsson reif fram skóna
eftir árs fjarveru og lék eins og eng-
ill þó nokkuð þungur væri. Bara
vera hans í vörninni gaf Valsmönn-
um mikið sjálfstraust hvað varnar-
leikinn varðar og á því þurfa þeir svo
sannarlega að halda.
Haukarnir eru þriðja árið í röð
undir stjórn Arons Kristjánsson-
ar langstöðugasta liðið í N1-deild-
inni. Þeir tróna á toppnum þrátt fyrir
að vera ekki jafnsterkir og í fyrra. Það
sem Aron hefur þó vantað síðustu tvö
árin er að komast í Höllina með lið
sitt. Á meðan þeir hafa unnið Íslands-
meistaratitilinn, næsta auðveldlega,
í tvígang sárvantar þá bikarinn aftur í
Fjörðinn.
Tvö bestu liðin mætast
Stjarnan hefur unnið bikarinn undan-
farin tvö ár hjá konunum en hann fer
á nýjan og gamlan stað á laugardag-
inn. Hið gífurlega sigursæla bikarlið
Framara er komið aftur í úrslitaleikinn
undir stjórn Einars Jónssonar gegn
Valskonum sem hafa ekki tapað leik
á tímabilinu. Valskonur þyrstir í titil
en síðustu ár hafa ekki verið þeim góð
þrátt fyrir að tjalda miklu til.
Fyrri leik liðanna á tímabilinu
lauk með jafntefli, 21-21, en þeg-
ar þau mættust aftur í janúar unnu
Valskonur, 25-22. Er því alveg ljóst að
um hörkuleik verður að ræða. Í báð-
um liðum eru landsliðskonur í kipp-
um. Markverðir liðanna, Berglind Íris
Hansdóttir hjá Val og Íris Björk Sím-
onardóttir, eru markverðir íslenska
landsliðsins og gætu úrslitin auðveld-
lega ráðist á því hvor stendur sig betur.
Bæði lið geta spilað fanta varnarleik
og jafngóðan sóknarleik. Bikardag-
urinn ætti að verða eftirminnilegur í
Höllinni á laugardaginn.
Á laugardaginn ræðst hvaða lið hampa Eimskipsbikarnum í handbolta karla og kvenna en þá er sannkall-
aður bikardagur. Haukar og Valur mætast hjá körlunum en hjá konunum verður Reykjavíkurslagur tveggja
efstu liðanna í N1-deildinni, Vals og Fram.
Harkan sex Það er alltaf hart tekist á
þegar Haukar og Valur mætast eins og
sást í úrslitarimmunni síðasta vor.
Vill titil Stefán Arnarson hungrar í bikar
með Valskonum.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
BIKARDAGUR Í HÖLLINNI