Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2010, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2010, Qupperneq 6
6 fréttir 26. nóvember 2010 föstudagur Opið virka daga 12-18 laugardag 12-16 Grensásvegi 8 -108 RVK Sími: 517-2040 Góðir skór á börnin www.xena.is St. 24-35 kr. 4.795.- St. 24-35 kr. 4.795.- St. 24-35 kr. 4.995.- St. 24-35 kr. 4.795.- Fréttir um samruna Storm Seafood og Eyrarodda rangar: Samstarf um löndun og vinnslu „Þetta er partur af samkomulagi sem verið er að skoða hvort gangi eftir. Þetta er spurning um samstarf um löndun og vinnslu en það á eftir að skýrast betur hvernig þetta þróast,“ segir Teitur Björn Einarsson, stjórn- arformaður Eyrarodda á Flateyri, um löndun út fiskiskipinu Stormi á Flat- eyri. Stormur landaði afla á Flateyri á mánudaginn í fyrsta skipti en um var að ræða nokkurs konar prufulönd- un. Teitur segir þetta vera einn hlekk í langri keðju til að styrkja stoðir undir vinnsluna en eins og kunnugt er þurfti Eyraroddi að segja upp öllu sínu starfsfólki í haust. Síðan þá hef- ur fyrirtækið leitað leiða til að finna rekstrargrundvöll og ráða starfs- menn til sín aftur. Eyraroddi óskaði eftir heimild hjá dómara um nauðasamningaumleit- anir sem hefur verið staðfest. „Heim- ild til nauðasamninga var veitt síð- astliðinn miðvikudag og nú fer í gang lögbundið ferli til að ná utan um málið með okkar kröfuhöfum,“ segir Teitur. Aðspurður um þær fréttir að við- ræður hafi staðið yfir um samruna Storms Seafood og Eyrarodda segir hann svo ekki vera og að það teng- ist ekki samstarfinu um löndun og vinnslu. Hann segir að það sé enn óvíst með starfsmennina að svo stöddu. „Við erum að reyna eins hratt og við getum að fá einhverja niður- stöðu sem gerir það að verkum að við getum dregið uppsagnirnar til baka. Sá tímapunktur er ekki kominn,“ bætir hann við. gunnhildur@dv.is Prufulöndun Teitur segir þetta einn hlekk í langri keðju til að styrkja stoðir vinnslunnar. Mynd: Páll Önundarson Ósáttur við uMræðu uM EsB: „Alið á ótta“ Umræðan um þetta stærsta hags- munamál þjóðarinnar er því miður á stigi fáránleikans á stundum,“ segir Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingar. Hann segir að stærsta ákvörðun þjóðarinnar á næstu miss- erum sé hvort Ísland eigi að gerast aðili að Evrópusambandinu og hvort taka eigi upp evru í stað krónunnar. Þetta segir Björgvin í nýjum pistli á bloggsíðu sinni. Björgvin segir að upptaka evru sé greiðasta leiðin til endurreisnar landsins og stóri lær- dómurinn af hruni efnahagskerfis- ins. Hann bendir á Írland sem dæmi og spyr hvar þeir stæðu ef þeir væru að glíma við gjaldeyrishrun ofan í vanda fjármálakerfisins. „Þar er alið á ótta um innlimun í stórríki ESB, afsal auðlinda, fullveld- is og sjálfstæðrar tilveru þjóðarinn- ar. Alið á því að Ísland yrði undir í leit bandalagsins ógurlega að auknu „lífsrými“ og því sé allt að óttast, jafnvel sé þjóðerni, tunga og samfé- lag í stórhættu.“ Björgvin segir að landbúnaðar- og byggðamálin séu sér hugleikin. Hann viðurkennir að sumir þættir landbúnaðar gætu orðið fyrir ágjöf, en um leið yrði breytingin til þess að efla verulega aðra hluta hans, ekki síst sprotana og nýjar greinar. DV hefur traustar heimildir fyrir því að Fangelsismálastofnun sé að at- huga starfshætti Geirmundar Vil- hjálmssonar, forstöðumanns fang- elsisins á Kvíabryggju. Grunur leikur á að Geirmundur hafi misnotað reikninga Kvíabryggju í eigin þágu en talið er að hann hafi keypt vörur út á reikninga sem fang- elsið er með hjá að minnsta kosti tveimur fyrirtækjum. Samkvæmt heimildum DV sýna reikningar þar óeðlilegar úttektir sem samræmast ekki umfangi og tækjakosti stofnun- arinnar og mun upphæðin vera á bil- inu 2–3 milljónir það sem af er árinu. Eftir að hafa rannsakað málið óop- inberlega hefur Fangelsismálastofn- un séð ástæðu til að setja Geirmund í leyfi. Í samtali við DV á fimmtudags- morgun kannaðist Geirmundur ekki við neina rannsókn á sínum störfum. „Ég er bara í vinnunni og við erum bara að ganga frá ársuppgjöri og það er ekkert að gerast svoleiðis. Það er ekki stafur fyrir því að neitt svoleiðis sé í gangi.“ Í leyfi frá störfum Málið er enn á frumstigi en heimild- ir herma að Geirmundur verði sett- ur í leyfi frá störfum frá og með föstu- deginum 26. nóvember. Ekki er vitað nákvæmlega hvaða vörur hann á að hafa keypt út á reikninga fangelsis- ins á Kvíabryggju en þó eru heimild- ir fyrir því að ýmislegt sem ekki ætti að nýtast Kvíabryggju hafi verið skrif- að á reikning fangelsisins sem og að grunsamlega mikið magn af vissum vörum hafi verið keypt. Í samtali við DV vildi Páll Win- kel fangelsismálastjóri hvorki neita þessu né játa og sagðist „ekki vilja tjá sig um einstaka mál“. Þá vildi Sveinn Arason ríkisendurskoðandi ekki tjá sig um málið og vísaði á viðkom- andi ráðuneyti til að svara fyrispurn blaðamanns. Ekki náðist í Hauk Guðmunds- son, skrifstofustjóra dómsmála- og löggæsluskrifstofa, vegna málsins. tók við af föður sínum Geirmundur Vilhjálmsson hefur ver- ið forstöðumaður á Kvíabryggju frá árinu 2006 en áður starfaði hann þar sem fangavörður. Hann tók við starf- inu af föður sínum Vilhjálmi Péturs- syni en Vilhjálmur var forstöðumað- ur þar frá 1981 og hafði sjálfur starfað sem fangavörður við fangelsið frá 1971. Móðir Geirmundar vann einn- ig á Kvíabryggju, en hún var þar mat- ráðskona fangelsisins. Geirmundur var á árum áður far- sæll frjálsíþróttamaður og setti með- al annars héraðsmet Snæfellsness- og Hnappadalssýslu í sleggjukasti á Steinþórsmótinu árið 2006. Fangelsismálastofnun hefur hafið rannsókn á starfsháttum Geirmundar vilhjálms- sonar, forstöðumanns Kvíabryggju. Grunur leikur á að hann hafi misnotað reikninga fangelsisins í eigin þágu. Hann kannast sjálfur ekki við neitt slíkt. GRUNAÐUR UM AÐ MISNOTA ALMANNAFÉ Hanna ÓlafsdÓttir blaðamaður skrifar: hanna@dv.is Ég er bara í vinn-unni og við erum bara að ganga frá árs- uppgjöri og það er ekk- ert að gerast svoleiðis. til rannsóknar Óopinber rann- sókn hefur farið fram á starfsháttum Geirmundar, en hún snýr að því sem virðast óeðlilegar úttektir af viðskiptareikningum fangelsisins. fangelsið Kvíabryggja Geirmundur hefur verið forstöðu- maður fangelsisins frá árinu 2006.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.