Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2010, Blaðsíða 50
50 TÆKNI UMSJÓN: PÁLL SVANSSON palli@dv.is 26. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
Google OS á
næsta ári
Google OS eða Chrome OS-stýrikerfið
eins og það er líka kallað átti að koma
á markað fyrir þessi áramót en því
hefur nú verið frestað fram á næsta
ár. Stýrikerfið verður þó kynnt af hálfu
Google nú í desember en tölvufram-
leiðendurnir Acer og HP munu ekki
setja far- og fistölvur á markað búnar
stýrikerfinu fyrr en á næsta ári. Google
OS, sem er ætlað fis- og smátölvum, er
frábrugðið þeim stýrikerfum sem við
þekkjum því Chrome-vafrinn gegnir
þar lykilhlutverki í öllum aðgerðum og
veflægur hugbúnaður kemur að mestu
leyti í stað hefðbundinna forrita.
Opera 11 í
beta-útgáfu
Þeir sem eru áhugasamir um að prófa
tilraunaútgáfur hinna ýmsu vafra
geta nú sótt nýjustu beta-útgáfu
af Opera 11-vafranum sem kom
í vikunni en meðal nýjunga er
svokölluð flipastöflun (tab-stacking)
sem gerir kleift að setja marga flipa
saman í stafla. Þegar bendillinn er
síðan færður yfir staflann sprettur
fram gluggi sem sýnir allar þær
vefsíður sem þar er að finna. Mozilla
Firefox 4-vafrinn sem kemur á næsta
ári er með svipaða útfærslu fyrir flipa
og kallar viðmótið Firefox Panorama.
Njótum aðventunnar saman
2 dálkar = 9,9 *10
Opið: má-fö. 12:30 -18:00, lau 11-16
Dalvegi 16a, Rauðu múrsteinshúsunum Kóp.201
S: 517 7727 nora.is , facebook.com/noraisland
opið laugardaga til jóla 11-16
Fyrir bústaðinn og heimilið
Uppfæra
neyðarkerfi
Að meðaltali er á hverjum degi hringt
um 500 þúsund sinnum í neyðarnúmerið
911 í Bandaríkj-
unum. Ljóst er að
fjöldi þeirra sem
sendir textaskila-
boð í númerið
eykst með hverju
ári. Þetta veldur
stjórnvöldum
áhyggjum þar sem
nánast öll útibú
neyðarlínunnar
geta ekki tekið við
slíkum boðum.
Fjarskiptastofnun Bandaríkjanna (FCC)
er nú að móta áætlun sem gerir ráð fyrir
að þjónustan á landsvísu geti tekið við
texta- og myndskilaboðum auk þess
sem fjölmörg önnur kerfi geti sjálfkrafa
sent inn boð í framtíðinni. Uppfærsla
neyðarkerfisins þýðir jafnframt að ýmsir
hópar fatlaðra geti nýtt sér kerfið.
Nánast öll dagblöð í heiminum halda einnig úti fréttavef og sérstökum netútgáfum
fyrir áskrifendur. Með tilkomu snertitölva hefur landslagið breyst að mati eins stærsta
fjölmiðlaeiganda heims í dag. Stafræn dagblöð eru framtíðin og þurfa ekki endilega
prentmiðil sem bakhjarl.
Rupert Murdoch, fjölmiðlamógúllinn
bandaríski, og Steve Jobs, aðalfram-
kvæmdastjóri Apple-fyrirtækisins,
eru í sameiningu að undirbúa út-
gáfu nýs stafræns dagblaðs sem mun
bera nafnið Daily. Samkvæmt fréttum
nokkurra bandarískra fjölmiðla verð-
ur tilkynning þessa efnis gefin út nú
fyrir mánaðamótin en undirbúning-
ur dagblaðsins hefur staðið yfir und-
anfarna mánuði í New York og verið
haldið leyndum. Nýja blaðið er hann-
að sérstaklega fyrir snertitölvur eins
og iPad-tölvuna frá Apple og er áætl-
að að fyrsta tölublaðið líti dagsins ljós
snemma á næsta ári.
Breytt landslag
Hinn 79 ára gamli Murdoch er sagður
sannfærður um að eigendur snerti-
tölva sé tilbúnir að greiða fyrir áskrift
að „hágæða-fréttablaði“ í stafrænni
útgáfu en samkvæmt spám nokkurra
markaðsgreinenda er talið að um
40 milljónir iPad-tölva verði komn-
ar í notkun meðal almennings í lok
næsta árs. Murdoch telur að snerti-
tölvur hafi verulega breytt landslag-
inu á fréttamarkaðinum og í náinni
framtíð muni nánast hvert heimili
í Bandaríkjunum nálgast fréttir og
upplýsingar með slíkum tölvum.
Risastór markaður
Fjölmiðlaveldi Murdochs, News
Corp. á meðal annars dagblöð og
sjónvarpsstöðvar í Bandaríkjun-
um, Bretlandi, Ástralíu og Asíu, til
dæmis hin virtu blöð Wall Street Jo-
urnal (Bandaríkin) og The Times og
Sunday Times (Bretland). Netútgáf-
ur þessara blaða hafa gengið mis-
vel, The Times er einungis með um
hundrað þúsund áskrifendur en Wall
Street Journal fær tekjur frá um það
bil tveimur milljónum netáskrifta.
Í gegnum App Store
Daily verður hins vegar ekki hægt
að nálgast í hefðbundinni netút-
gáfu heldur verður einungis hægt
að sækja blaðið og gerast áskrifandi
til að byrja með í gegnum App Store,
vefverslun Apple fyrir iPhone, iPad
og iPod. Í kjölfarið fylgi síðan And-
roid Market fyrir snertitölvur sem
keyra á Android-stýrikerfinu.
Ef blaðið gengur vel og önnur
blöð fylgja á eftir með svipaðar út-
gáfur er ljóst að Apple gæti hagnast
verulega með þessu samstarfi en í
nokkurn tíma hefur þess verið vænst
að iTunes-verslun fyrirtækisins hæfi
áskriftarsölu á netútgáfum dagblaða.
Sú leið hefur lagst misjafnlega vel í
útgefendur með tilliti til þess hvernig
Apple hefur þar náð að stjórna verði
á tónlist.
100 blaðamenn
Nýja blaðið hefur þegar ráðið til sín
um hundrað reynda blaðamenn,
marga þeirra vel þekkta innan blaða-
heimsins vestanhafs. Það hefur vakið
athygli að sumir þeirra tengjast einn-
ig fréttaflutningi í sjónvarpi sem leið-
ir líkur að því að Daily verði eins kon-
ar samruni hefðbundins dagblaðs og
fréttamyndskeiða. Samkvæmt heim-
ildum mun vikuleg áskrift að hinu
nýja blaði kosta 0,99 dollara eða um
114 krónur.
Jobs og Murdoch
undirbúa dagblað
Steve Jobs Jobs er sagður vera mikill
aðdáandi Murdochs og þess má vænta
að þeir félagar stígi saman á svið fyrir
lok mánaðarins til að kynna hið nýja
fréttablað.
Rupert Murdoch Fjölmiðlamógúll-
inn er óhræddur við að reyna nýjar
leiðir í blaðaútgáfu til að koma til
móts við tækni nútímans.