Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2010, Page 53
FÖSTUDAGUR 26. nóvember 2010 SPORT 53
Magni Fannberg Magnússon þjálfar
sænska unglingaelítuliðið Bromma-
pojkarna en liðið er frá Stokkhólmi.
Hann kom til liðsins sumarið 2009 og
þjálfar nú lið undir 17 ára leikmanna.
Þrátt fyrir að vera einungis 31 árs
gamall hefur hann mikla reynslu sem
knattspyrnuþjálfari. Hann þjálfaði lið
Fjarðabyggðar í fyrstu deildinni frá
2007 til 2008. Áður var hann aðstoð-
arþjálfari Grindavíkur, yfirþjálfari
yngri flokka hjá Val og þjálfari hjá HK.
„Ég var búinn að ákveða það eftir
að ég hætti hjá Fjarðabyggð að fara út
að þjálfa. Byrjaði að þreifa fyrir mér.
Það kom annað hvort til greina að
verða aðstoðarþjálfari hjá liði í meist-
araflokki eða taka við unglingaliði,“
segir Magni. Fékk hann starfið fyr-
ir tilstuðlan umboðsmannsins Guð-
laugs Tómassonar.
Leiðandi á Norðurlöndunum
„Markmið liðsins er að vera leiðandi
á Norðurlöndunum og reyna að fara
sem mest til útlanda að spila leiki.
Leikmenn eiga að spila minnst sex
leiki á ári gegn erlendum stórliðum.
18 ára leikmenn eiga að hafa spilað
60 svoleiðis leiki,“ segir Magni. Lið
leikmanna undir 16 ára hefur á þessu
ári unnið alla titla sem í boði eru í Sví-
þjóð.
Hjá liðinu spila 4.000 leikmenn
hjá 250 liðum. Leikmenn geta kom-
ist í elítuþjálfun þegar þeir eru átta
ára gamlir. Elítuþjálfunin er fyrir leik-
menn á aldrinum átta til nítján ára.
Að sögn Magna reyna um 1.000 strák-
ar fyrir sér árlega en einungis átta af
þeim komast í elítuflokk og hefja þá
æfingar hjá Brommapojkarna átta
ára gamlir. Fá þeir eins árs samning
en staða þeirra er skoðuð á hverju ári.
Brommapojkarna hóf elítuþjálfun
ungmenna í kringum árið 2000. Hef-
ur þetta starf þeirra skilað þeim ævin-
týralegum árangri. Í dag hafa 26 leik-
menn sem fæddir eru á árunum 1991
til 1995 spilað með sænska landslið-
inu. Í Allsvenska, úrvaldsdeildinni í
Svíþjóð, eru 29 leikmenn í dag sem
voru aldir upp hjá Brommapojkarna.
Tíu leikmenn hafa síðan verið seldir
til liða í Evrópu. Hefur Magni ferðast
víða um Evrópu að undanförnu þar
sem hann hefur farið með leikmenn
til reynslu. Segist hann hafa eytt 40
dögum erlendis á árinu þar á meðal
á Spáni, í Þýskalandi og Ítalíu svo fátt
eitt sé nefnt.
Að sögn Magna hefur hann ekki
verið að leita að efnilegum íslenskum
leikmönnum. „Markmið liðsins er að
finna góða leikmenn hér á svæðinu
og ala þá upp. Flesta reynum við að
fá fyrir 12 ára aldur og í síðasta lagi 15
ára,“ segir hann.
Ekki á heimleið
Magna líður vel í Svíþjóð og segist
hann alls ekki vera á heimleið. „Ég
mun vera hérna eins lengi og ég get,“
segir hann. Í Svíþjóð geti hann alfarið
einbeitt sér að þjálfun en þurfi ekki að
sinna neinum öðrum störfum. Hann
er í sambúð með Leu Sif Valsdóttur,
en hún hefur einnig starfað við knatt-
spyrnuþjálfun og spilaði með liði
Vals. Þau eignuðust nýlega sitt fyrsta
barn.
Magni Fannberg Magnússon, þjálfar
sænskt elítulið í Stokkhólmi í Svíþjóð. Lið
Brommapojkarna er leiðandi á Norðurlönd-
um í þjálfun ungmenna en mjög margir
landsliðsmenn Svía eru uppaldir hjá liðinu.
ÞJÁLFAR
SÆNSKT
ELÍTULIÐ
ANNAS SIGMUNDSSON
blaðamaður skrifar: as@dv.is
Reynslumikill Magni Fannberg
Magnússon hefur þegar þjálfað hjá
fimm knattspyrnuliðum þrátt fyrir
að vera einungis 31 árs gamall.
Efnilegustu leikmenn Svía Magni Fannberg Magnússon þjálfar efnilegustu leikmenn
Svía. Ekkert lið í Svíþjóð skilar jafn mörgum landsliðsmönnum og lið Brommapojkarna.
25% afsláttur
af hvítum háglans innréttingum
Sérhæfum okkur
í innréttingum
fyrir heimili á
lágmarksverði