Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Side 70
Helgarblað 30. maí –2. júní 20146 Sjómannadagur
Sjómenn leggja
undir sig landið
n Sjómannadagshelgin er sérlega fjörug í ár n Margar hátíðir um land allt
Reykjavík
Hátíð hafsins
Hátíð hafsins er haldin dag
ana 31. maí–2. júní til heiðurs
sjómönnum. Hátíðarhöldin
teygja sig frá Granda yfir á
Ægisgarð. Á meðal dagskrár
liða má nefna Skoppu og
Skrítlu, stjörnurnar úr Ísland
Got Talent, Lúðrasveit Reykja
víkur og Pollapönk. Þetta er
aðeins brot af dagskránni en
nánari upplýsingar má finna á
hatidhafsins.is.
Flateyri
Sjóstökk og
kappbeiting
Á Flateyri verða hátíðar
höld laugardaginn 31. maí og
sunnudaginn 1. júní. Meðal
annars verður boðið upp á
bryggjufjör þar sem keppt
er í kappbeitingu, flottasta
sjóstökkinu, koddaslag og
reiptogi svo eitthvað sé nefnt.
Á laugardagskvöld er síðan
ball á Vagninum með hljóm
sveitinni Sólon. Á sunnudag er
sjómannadagsmessa og hefð
bundin hátíðarhöld.
Raufarhöfn
Gleði á Jökulsbryggju
Sjómannadagurinn á Raufarhöfn er haldin hátíð
legur föstudaginn 30. maí og laugardaginn 31. maí.
Dagskráin hefst með árlegu kaffi Framsýnar í Kaffi
Ljósfangi. Á laugardag hefst dagskrá með siglingu
frá Jökulsbryggju klukkan 13.00. Að henni lokinni er
sjómannamessa. Næst tekur við skemmtidagskrá á
Jökulsbryggju og verður vel tekist á. Má nefna sjó
mann, bíladrátt, reiptog og kaðlaklifur. Að lokum er
dansleikur með Sífrera í Hnitbjörgum. Nánari upp
lýsingar má finna á raufarhofn.is.
Eskifjörður
Stórtónleikar
og minnisvarði
Sjómannadagsfögnuðurinn
verður með glæsilegra móti
hjá Eskfirðingunum þetta
árið. Dagskráin hefst mið
vikudaginn þegar DJ Spider
stígur á svið á Kaffihúsinu. Þétt
dagskrá er síðan frá fimmtu
degi til sunnudags en há
punkturinn er 70 ára afmælis
tónleikar Eskju þar sem fram
koma Raggi Bjarna, Guðrún
Gunnars, Matti Matt, Egill
Ólafs, Erna Hrönn og Bubbi
Morthens. Grínistinn og eft
irherman Sóli Hólm verður
kynnir. Á föstudag verður
Rútu ferð í Vöðlavík frá Mjó
eyri, þar verður vígður minn
isvarði vegna Goðasjóslyssins.
Hafnarfjörður
Afmælishátíð og Sirkus Íslands
Sjómannadagsgleðin í Hafnarfirði fer fram á afmælisdegi bæjarins, 1. júní.
Dagskráin hefst með formlegum hætti þegar fánar eru dregnir að húni
klukkan átta á sunnudagsmorgun. Á meðal þess sem er í boði yfir daginn
er skemmtisigling með Eldingu, Sirkus Íslands, kararóður, björgunarsveit
Hafnarfjarðar sviðsetur björgunaraðgerð og Bjarni töframaður stígur á svið.
Grindavík
Sjóarinn síkáti
Hátíðin Sjóarinn síkáti fer fram í
Grindavík dagana 28. maí–1. júní.
Hátíðin er sérlega vegleg í ár í tilefni
af 40 ára kaupstaðarafmæli Grinda
víkurbæjar. Bærinn gaf út sérstakt
48 síðna blað í tilefni af hátíðinni
í samstarfi við Víkurfréttir en raf
ræna útgáfu má finna á grindavik.
is. Á meðal skemmtiatriða má nefna
Skítamóral, Skoppu og Skrítlu og
keppnina Sterkasti maður Íslands.
Skagaströnd
Skrúðganga
og Skandall
Hátíðarhöld vegna sjómanna
dagsins fara fram laugardaginn 31.
maí á Skagaströnd. Dagskrá hefst
með skrúðgöngu frá höfninni að
Hólaneskirkju klukkan 10.30. Yfir
daginn verður meðal annars skotið
úr fallbyssu, haldin mótorhjólasýn
ing og veitingar seldar í Fellsborg.
Klukkan 23 hefst svo dansleikur með
hljómsveitinni Skandal í Fellsborg.
Patreksfjörður
Bjöggi Halldórs og kassabílarall
Á Patreksfirði stendur dagskráin frá fimmtudeginum 29. maí fram á sunnudaginn 1. júní. Boðið
verður upp á fjölbreytta dagskrá og má þar nefna kassabílarall, hoppukastala, siglingar, krafta
keppni og róðrarkeppni. Þá fer fram knattspyrnumótið Thorlacius Cup. Björgvin Halldórs
son og Eyþór Ingi eru á meðal þeirra sem haldi uppi stuðinu föstudags og laugardagskvöld.
Hefðbundin sjómannadagsdagskrá er á sunnudag.
Bolungarvík
Sædýrasýning og
Suðvestan fimm
Hátíðarhöldin í Bolungarvík standa frá föstudeginum 30.
maí til sunnudagsins 1. júní. Þótt formleg dagskrá hefjist á
föstudag er hið árlega dorgveiðimót á sínum stað fimmtu
daginn 29. maí. Björn Thoroddsen heldur tónleika í Fé
lagsheimilinu á föstudag. Á laugardag hefst svo dagskráin
að morgni og lýkur með balli hljómsveitarinnar Suð
vestan fimm um kvöldið. Á sunnudag verður hin árlega
skrúðganga og önnur hefðbundin dagskrá.